Tuesday, December 23, 2008

22.des

Hejó!

Ok, ég hef ekki skrifað neitt núna í dáldin tíma en satt best að segja hefur ekki verið það mikið að gerast nema hversdagsleikinn.

Tvær vikur fóru í lokaverkefni og próf. Skilaði fyrst inn lokaverkefninu fyrir miðlunarfræði (tala dæmið) og fékk, minnir mig, 8 fyrir það og svo 9 í lokaeinkunn. Mjög sátt með það.
Fór svo í prófið í íslensku og fékk 7.5 í því og 7 í lokaeinkunn. Gott miðað við hvað ég var löt að læra.
Og loks skilaði ég inn lokaverkefninu í tvívíðri hönnun sem var barnabókin.
Þessi barnabók er að verða heldur mikil vinna fyrir mig. Ég sat fyrir framan tölvuna nokkurnvegin samfleytt í 5. daga og ég náði samt ekki að klára myndirnar. Ég þurfti að skera af nokkrar bls. og svona en ég fékk held ég mjög góða einkunn fyrir þetta. Það voru bara nokkur smáatriði sem ég klikkaði á því ég var svo þreytt.
Fékk 8 í lokaeinkunn.

Annað var að ég fékk auðvitað 9 í ensku, 8 í skjámiðlun (eins og ég spáði, kennaranum fannst ég hefði getað gert mun betur) og svo 10 í skólasókn.

Eftir það hefur maður bara verið að plana jólin á fullu. Er búin að baka tvær sortir af súkkulaðibitakökum, kaupa inn allar jólagjafirnar, vinna í Skeifunni, fara upp í Heiðmörk (ásamt öðrum) að höggva tré og þrífa herbergið mitt. Er reyndar ekki búin að setja upp jólaskrautið í herberginu og ég er ekki viss um að ég eigi eftir að nenna því. Reyni samt að gera það á morgun.

Svo var hún mamma að halda upp á afmælið sitt núna í dag með tilheyrandi jólaboði. Heppnaðist vel eins og vanalega.
Það eina sem verður skrítið þessi jól er að það er ekkert jólakaffi hjá afa núna. Enginn hefur boðist til að halda það og mín fjölskylda er orðin ansi þreytt á því að vera sú sem heldur öll boð. Frá því að ég man eftir mér þá hefur annar í jólum snúist um það hjá mér, mömmu og systrum mínum að þrífa hjá afa, baka Krásuköku og setja upp boðið. Það hefur nokkurnvegin allur dagurinn farið í það, ef ekki fleiri í undirbúning.
Ég er ekki að kvarta yfir því, þetta var gaman og góð hreyfing eftir letina á jóladag. En mér finnst það alveg ótrúlegt að enginn af systkinum hennar mömmu geti drullast til að halda eitt stykki jólaboð fyrir þessa fjölskyldu svona einu sinni. Alltaf verið að stóla á mína.

Æi, nenni ekki að pæla í þessu liði núna. Ég er að fara að sofa.

Veit ekki hvort ég eigi eftir að skrifa aftur í nokkra daga svo... GLEÐILEG JÓL/LJÓSAHÁTÍÐ/MIÐVIKUDAGUR eftir nokkra daga
Knús frá Söndru.