Monday, June 29, 2009

Bara ég

Stundum velti ég því fyrir mér hvort að ég sé eitthvað hrikalega furðuleg mannvera. Ég virðist ekki hafa eins samskipti og aðrir sem ég þekki. Þá er ég að tala um Íslendinga, þegar ég var í Englandi virtist fólkið þar fatta mig betur.

Það er eins og það sé alltaf þessi þöglu samskipti og samkomulög á milli aðra. Veit ekki alveg hvernig á að útskýra það.
Eins og þegar eitthvað gerist eða einhver segir eitthvað sem er almennt séð ekki samþykkt sem venjulegt eða samkvæmt reglunum (hverjar sem þær eru) er það hunsað. Sama gerist eftir djamm. "Já, þú drakkst, þú mannst ekkert hvað þú sagðir, ég þarf ekki að takast á við það". Svo er maður svo hræddur um meiri útskrúfun eða hunsun að maður bendir aldrei á að "þó að ég hafi verið aðeins í glasi veit ég hvað ég sagði og meinti það".

Er þetta til að hlífa tilfinningum annarra? Ef svo er er það mjög slæm aðferð. Þetta ruglar mann bara og maður hugsar um atvikið/hugmyndina/samtalið mun lengur en maður þarf ef rætt hefði verið um hlutinn strax.
Veit ekki, kannski er þetta bara ég

Monday, June 15, 2009


Jæja, ég er byrjuð í sumarvinnunni í Vínbúðinni. Það var tvísýnt á tímabili hvort ég fengi vinnu þar en núna er ég komin í fulla vinnu plús það vinn ég alla laugardaga í staðinn fyrir annan hvern. Ótrúlegt, eina stundina er ekki víst hvort það verði ráðið eitthvað af viti um sumarið og þá næstu erum við fáránlega fámenn. Í fyrra voru um 10 sumarstarfsmenn allt sumarið, núna erum við tvær í fullu starfi og tveir í aukastarfi. Það er búið að ráða tvo eða þrjá í viðbót en veit ekkert hvenær þau byrja. Þangað til verðum við hin að vinna í fáránlegu stressi og álagi.

Ooooooooohhh þetta er svo mikið klúður.

Vonandi verður þetta ekki svona í allt sumar. Ég er nú þegar komin með nóg af öllu dramanu og frekjunni í sumum en ein af mínum helstu áhyggjum er að sumarið verði búið áður en ég veit af og ég hef ekki gert neitt í þann tíma nema verið í vinnunni.

En ekki mikið fleira að gerast í mínu lífi. Er farin að sakna Birnu en hún ætlar að eyða mestu sumrinu sem barnfóstra í London fyrir frægan fótboltakall.

Fór með Maríu, Birkir og Magnús Breka á sumarsprell ÁTVR í gær og mér skylst á öllu að þau hafi skemmt sér æðislega vel. Biggi og Ingibjörg urðu líka mjög þakklát.
That's about it.