Wednesday, September 24, 2008

Og enn við byrjum

Yes, here we go again. Enn ein bloggsíðan.


Mér lýst samt vel á þessa. Ég fæ að velja litina mína sjálf og hausinn líka. Gæti held ég líka sett inn myndir og myndbönd ef ég vildi. Very nice. Ég ætla að prófa það núna.

Yeeee. Það virkaði

Ok, þá er að prófa hvort ég geti haft myndband

Ég hefði viljað setja inn eitthvað af youtube en jæja...

Allavega. Eins og ég sagði þá er þetta enn eitt bloggið sem ég er byrjuð með en ég held að ég sé loksins búin að finna það sem hentar mér best. Nú þarf ég bara að reyna að vera virk með að segja frá lífi mínu.

En ég er samt að pæla... það er eins og þeir sem eru ekki með blogg séu þeir sem hafa mest af lífi. Bara pæling. Ég ætla auðvitað að hafa bæði.

En þar sem ég hef ákveðið að reyna eftir mesta megni að komast í the Academy of Arts University ætla ég að reyna að spara í vetur. Planið er að fara eins lítið og hægt er á djammið í vetur eða just for special friends ;)

Líka, ég ætla að reyna að draga saman kostnað á nammi og nesti. Smyrja samlokur og hætta að hafa viðskipti við okurbúlluna í skólanum. Svo verða líka engin fatakaup nema ég sé í útlöndum eða kannski fyrir jól. Ég get ekki hugsað mér að losa mig við bílinn en maður reynir kannski að minnka notin. Svo er að finna eitthvað fyrir mann að gera sem kostar lítinn pening.

En ég er samt að pæla í að kaupa mér kort í Borgarleikhúsið. Ég sé eftir því að hafa ekki verið virkari í leikhúsunum og eytt frekar pening í bíó þegar ég leigi myndir frítt. Svo er líka námsmannaafsláttur þannig að þetta ætti ekki að vera svo dýrt.

Talandi um leikhús. Ég og fleiri fórum á Fló á Skinni um helgina. Hrikalega gott leikrit. Það er þessi leikari, Guðjón Karl eitthvaðson (Gói). Hann var að leika tvo gaura sem litu nákvæmlega eins út og þetta er svona ruglingur með það hvor er hvað þannig að hann þurfti að skipta um föt á methraða. It's just insane. Mig langar eiginlega að sjá það aftur :)

En ég held að ég stefni á það að fara á Fólkið í Blokkinni. Gói er að leika í því líka þannig að... ;)

Skólinn gengur ágætlega. Slatti af verkefnum en þetta gengur samt mjög vel þannig að ég hef ágætlega mikið af frítíma. Það gæti orðið mikið stress fyrstu tvær vikurnar í október því að ég þarf þá að skila inn ýmsum verkefnum og fara í eitt próf en svo er ég flogin til Köben með Guðrúnu.

Við erum að fara um morgunin á fimmtudaginn 9. okt. og verðum fram á sunnudag. Ekki alveg ákveðið hvað á að gera en...

Hahaha, Guðrún var akkurat að hringja að segja mér að hún hafi bókað herbergi handa okkur. Þvílík tilviljun.

Jæja, nóg komið núna. Ég ætla að reyna að láta þetta blogg virka, skal.

Sjáumst seinna. Sandra

Í sama form

Þjóðhátíð var geðveik. Ég er strax farin að plana að fara þangað aftur næsta sumar. :)

Ohhhh, nú er sumarið liðið. Tími til að kveikja aftur á heilanum og skella sér í skólann... eða halda áfram að vinna eins og ekkert hafi breyst. Hvort heldur sem á betur við ykkur.

Ég er reyndar pínu ánægð að reyna á heilafrumurnar aftur. Það er gaman að fá góðar einkunnir og læra eitthvað sem maður hefur áhuga á. Ég er held ég bara í svoleiðis tímum núna. Fyrir utan íslensku 503, ég er ekki alveg að meika hana. Kennarinn ákvað að við skyldum byrja á því erfiðasta það er málfræðisögu og ljóðum. Við tökum svo lokaprófið í því í október eða eitthvað og erum svo bara að dunda okkur við að lesa Sjálfstætt Fólk og smásögur fram að jólum. Sem mér finnst gott plan, ef ég gæti bara skilið það sem við erum að læra um.

Ég átti að svara spurningum, í hefti, um lausmálshöfunda, hverjir þeir voru og hvaða stefnu þeir höfðu. En til þess að geta svarað þessum spurningum væri gaman ef einhver hefði fyrir því að útskýra hvað í fjandnum lausmálshöfundar eru. Ég játa að ég las bókina ekki af fullri einbeittni en það virðist ekki standa ein einasta útskýring á þessu orði í bókinni.

Gaman að byrja veturinn á því að fá móðursýkistkast yfir nokkrum íslenskuspurningum.En ef þið hafið ekki rekist á mig síðan á fimmtudag þá er auglýsingin mín loks að detta í hús. Bíóhús sko (see what I did there). Til að dusta af minninu ykkar þá er hér smá upprifjun:
Við í grafískum kúrs á síðustu önn tökum öll þátt í auglýsingasamkeppni fyrir Flott án fíknar (unglingar án áfengis/vímuefna). Auglýsingin var ætluð til að sýna í bíóhúsum meðan beðið var eftir myndinni (skjáauglýsing, ekki hreyfi). Ég lenti í öðru sæti. :)

Við í þremur eftstu sætunum erum því að fá auglýsingarnar okkar birtar núna í byrjun september. Mín auglýsing verður sýnd á þriðjudögum og föstudögum.Þannig að, ef þið ætlið í bíó leitið þá eftir teiknaðri (og litaðri) mynd af nokkrum krökkum í sófa. Það er mín mynd. Og ef þið heyrið hátt píkuskræk, það mun vera ég.
Síðasta mál sem ég ætla að fara yfir áður en ég fer aftur að horfa á Gossip Girl þættina (dýrkun) er að ég er ekki sátt með þessa síðu. Það virðist ekkert fútt í þessu nema maður borgi notendagjald og ef ég á að borga fyrir síðu vil ég þá frekar stofna mína eigin og setja hana upp sjálf.
En þar sem ég er lítil nánös þá flyst ég líklega bara á gamla bloggið aftur. Ef ég man lykilorðið...ég læt ykkur vita hvert ég fer.

Nema einhver sé til í að splæsa á mig léninu krumla.com?

Blu

Ok, við förum hratt yfir þetta:

Dagmar og María koma að kvöldi til 31. júlí

Þá á ég afmæliÉg er búin að baka tvær kökur og eitt bananabrauð fyrir vinnuna þá. Já, mér finnst gaman að baka.

Ég og Dagmar ætlum að skella okkur til Eyja frá laugardegi til miðvikudags.

Maggi má ekki vita það.Hann á eftir að fá að vita það þar sem hann kemur á þriðjudag.

Ég keypti mér nýja myndavél sem ég hefði í raun ekki átt að gera því að ég er að fara til Eyja en það voru bara tvær myndavélar eftir og ég vildi þessa.

Ég er þreytt og er farin að sofa. Big day tomorrow.

Bara smá

Jæja. Langt er liðið á sumarið. 22. júlí byrjar núna eftir stutta stund.

Þá á hún Birnulíus afmæli. Eins gott að maður er búin að kaupa afmælisgjöfina hennar annars ætti maður ekki von á góðu. ;)
Það er búið að vera alveg hrikalega gaman alltaf í vinnunni núna í sumar. Ég er með alveg frábæru fólki í vinnu og það eru svo margir aulabrandarar búnnir að vera í gangi í sumar að ég leggst ekki í að telja þá alla.
En hér er einn sem mér skemmtilegur:

Ég og Yngvi erum í kaffi. Yngvi kvartar yfir því að það er ekki til mjólk í kaffið.

Yngvi: Ég þyrfti helst bara að kaupa mína eigin kú til að mjólka. Þá á ég alltaf nóg af mjólk.
Ég: Já, og svo gefuru henni kakó og þá færðu kókómjólk.
Yngvi: ---Ég: En þú þarft samt að skilja hana.
Yngvi: Skilja hana?
Ég: Já, annars ertu bara að drekka rjóma
Yngvi: Jááá... skilja mjólkina.
Ég: Já, þú þarft ekki að skilja kúnna
Yngvi: Ja ég er náttúrulega með BA í sálfræði

Þeir voru mun fleiri en ég man þá ekki alla.
Allavega, ég á afmæli núna 31. og ég er í vafa um það hvort ég eigi að halda eitthvað uppá það eða ekki. Akkurat núna heng ég bara með Guðrúnu og Steinu (+ Birnu og Lindu) eftir vinnu svo að ég held að við ættum bara að fara út að borða saman. Væri til í að fara á djammið líka en sumir eru svo miklir félagskítar *hóst* Guðrún *hóst* kafn * dauði vegna þess að ég var vond vinkona*Nei, ég er að djóka Guðrún mín. You know I like ya :)

Heeeeeeyyyyyy við getum farið út að borða á Eldsmiðjunni, ég gjörsamlega dýrka pizzurnar þar og farið svo í bíó á the Dark Knight. Úúúú... I like it.Eða nei, hún Steinar er með glúkon ofnæmi. Vá, eins gott að við erum ekki fleiri, það tæki heila eilífð að finna eitthvað handa okkur að gera/éta. Æi, við finnum einhvern góðan stað.Hvað með Vegamót? Erum við nógu ríkar og fínar fyrir Vegamót?Svo er spurnng um tímasetninguna. Ef ég á að halda það um helgi væri náttúrulega best að gera það næstu helgi heldur en Verslunarmannahelgi þegar allir eru úr bænum. Nema við verðum allar eftir í bænum. Þá er það fullkomið.Annað í fréttum:Mig er virkilega, virkilega farið að langa að taka fleiri módeltíma. Ég æfi mig ekki nóg í því sem ég er slöpp í að teikna eins og bakgrunnar, dýr (var eitt sinn ágæt í því), karlmenn og miðaldra fólk.Það var ein af ástæðunum að mér leist vel á Academy of Arts. Þar var svo mikið af módeltímum plús sér kúrs þar sem tekin voru fyrir dýr.Úpps, klukkan er yfir 12. 22. júlí 2008 er hafinn. Nú þarf ég bara að skjótast og öskra á Birnu til hamingju með daginn. ;)

Broken dreams

Jæja, ég fór á Alþjóðaskrifstofuna í morgun til að tékka betur á skólum í Bandaríkjunum.

Í stuttu máli komst ég bara að því að nema ég vinni fjórfaldann í lottó þá er ég ekki á leiðinni til Bandaríkjana. Kannski ef ég ákveð að taka Masterinn en annars er þetta frekar ólíklegt.

Skóli í Bretlandi er ekki eins dýr en það lýtur út fyrir að ég endi í Danmörk þar sem þar get ég lært ókeypis.
Ég hef ekkert á móti þeim sem vilja búa og læra í DK. Gott hjá ykkur. Það er bara ekki eitthvað sem ég hef áhuga á.
Mig langar að búa í landi þar sem töluð er enska /(kannski) franska og það er ekki það mikið af Íslendingum. Er einhvernvegin meira ævintýri.
Í Bandaríkjunum er líka þessi stóru fyrirtæki og sumir skólarnir eru í svolitlu uppáhaldi hjá þeim svo að ef maður útskrifast úr þessum skólum (eins og Academy of Arts) þá á maður góða möguleika á að fá starf hjá þessum fyrirtækjum seinna meir.
Ætli ég setji þá ekki leitina að fullkomna skólanum á bið þar til í haust þegar ég get talað við námsrágjafa eða umsjónakennarann minn eða eitthvað.

Up to date

Ok, margt búið að gerast núna. Sumt sem hægt er að skrifa niður í almenna dagbók og annað ekki.
Ég var að lesa í Cosmo núna í dag að fólk er virkilega að auglýsa hvenær og hve lengi þau eru í sumarfríi. Það er í burtu frá húsinu sínu og meira að segja með heimilisfangið sitt á síðunni. Hversu heimskur getur maður verið? Gætu allt eins skrifa á vefsíðuna "Er með fullt af dýrum hlutum sem ég þarf að losna við, bý á Sogavegi 23, verð í burtu 2-10. ágúst, allir velkomnir".

Allavega, ég fór til Svíðþjóðar núna í byrjun Júní. Suddalega gott veður og mjög gaman að ferðast um Stokkhólm. Flugum svo með Ryanair til Englands.
Orðið pínu skrítið að Dagmar skuli ekki lengur vinna í miðri London þannig að það að fara að versla varð pínu vesen. Mér fannst ég ekki fá nógu góðan tíma í minni heitt elskuðu TopShop á Oxford Street og maður fór ekkert í H&M á Knightsbridge (sem að mínu mati er flottasta H&M búð sem ég hef farið í). Ég er að pæla í að skutlast þangað aftur rétt áður en skólinn byrjar í ágúst.
Langar að gera eitthvað virkilega skemmtilegt áður en ég fer aftur í skólann og það lýtur ekki út fyrir að ég sé að fara á Þjóðhátíð með Guðrúnu eins og við vildum þar sem við erum báðar það uppteknar (aðalega ég) í vinnunni þannig að við gætum ekki lagt af stað fyrr en á laugardag og komið aftur á mánudag. Alltof stuttur tími. Þannig að við ætlum kannski að finna okkur eitthvað annað að gera. Endilega komið með hugmyndir.

Fór líka á David Guetta tónleikana með Steinu. Hrikalega gaman það var. Maður var endalaust að rekast á einhvern sem maður þekkti og í eftirpartýinu náðum við okkur báðar í gaur. Ekki sami gaurinn auðvitað ;)

Fór á Kung Fu Panda á föstudaginn. Vá, hvað hún var geðveik! Ekki bara æðislega fyndin heldur voru gæðin alveg rosalega flott. Myndin byrjaði í 2D teiknimynd og ég horfði á hana heilluð. Rythminn og hversu vel hún flæddi og layerarnir........ aaaaahhhhhh. Ég er svo mikill lúði.

Annars er líf mitt utan vinnu frekar rólegt. Reyndar er líf mitt í vinnunni búið að vera frekar spennandi. Það var einn gaur sem ég hélt virkilega að ætlaði að lemja mig því að ég tók frá honum kortið hans (vákort, verð að taka það samkvæmt lögum). Einhver gömul fyllibyttu kona ætlaði að klappa mér á handlegginn en var ekki að einbeita sér og klappaði mér á annað brjóstið í staðinn.
Krakkarnir sem ég vinn með eru líka svo skemmtileg. Það er svo gaman að spjalla við þau og við erum öll svo ólík.
Svo er pressað á mann að mæta með eitthvað í vinnuna á afmælinu sínu. Ég var að pæla í að baka Gulrótarköku og kannski Krásuköku fyrir afmælið mitt núna 31. Er samt ekki viss hvort ég vilji svo halda upp á afmælið eitthvað frekar. Ég nenni valla að hafa partý og ég veit líka aldrei hverjum á að bjóða nema fólki í vinnunni. Æi allavega ég er farin að rausa.

Góða nótt,
Krumlus

Sunnudags blús

Ok, sunnudagur.
Ég er farin að sofa ótæpilega mikið. Það að sofa í næstum samfelda 12. tíma er að verða normið hjá mér. Ekki eðlilegt.Vaknaði aðeins klukkan 9. í morgun og fann lykt af vöfflum :S Fór aftur að sofa og dreymdi að ég væri með sturtu í miðju herberginu mínu.
Kannski stafar það að mér er farið að leiðast pínu núna þegar skólinn er búinn. Ég er ekki lengur vön því að hafa svona mikinn frítíma. Er að pæla í að biðja um að vinna alla laugardaga (í staðinn fyrir annan hvern) bara svo að ég hafi eitthvað að gera um helgar. Ég á eftir að verða svo mikill vinnualki í framtíðinni ;).
Verst að hún Guðrún er nú þegar orðin vinnualki þannig að það verður erfitt að hafa eitthvað samband við hana í sumar. Við höfum ætlað að hittast og gera eitthvað í tvær vikur en alltaf verið of uppgefnar í lok dagsins til að nenna því.
Ég ætlaði samt að vera virk núna í sumar við mín eigin verkefni. Ég skissa rosalega mikið en ég held að ég hafi aldrei virkilega klárað myndirnar mínar og litað þær.
Svo er ég með eina hugmynd af teiknimynd sem mig langar rosalega að gera að raunveruleika. Er búin að skrifa handritið en á eftir persónusköpunina (hvernig karakterarnir eiga eftir að lýta út) áður en ég fer að gera bakgrunna og svo sjálfa myndina.
Nú er bara að koma sér að verki og hætta að hanga bara á netinu eftir vinnu ;)
Og eins og ég nefndi í fyrri bloggfærslu þarf ég líka að nota sumarið í leit að skóla.
Ef einhver þarna úti sem les bloggið mitt (sem er frekar ólíklegt þar sem þetta er svo nýtt) má hann/hún endilega deila með mér ef þau vita um einhverja góða skóla í London. Eða einhverstaðar annarstaðar þess vegna.

Ég er nefnilega ekki nógu mikið inni í þessu. Þekki engan í þessum bransa nema kennarana mína og þar sem það er komið sumar verður dáldið erfitt að hitta á þá á göngunum ;)

En ok, tími til að gera eitthvað af viti (í fyrsta skipti ;)). Þarf að velja hvaða föt ég ætla að taka með mér til Svíðþjóðar/Englands. Sú ferð byrjar á miðvikudaginn og stendur í viku nema að ég neiti að koma heim frá London. Get ekki beðið eftir að fá mér kínverskan og Starbucks og fara að versla og... og....Svíðþjóð verður örugglega líka fín. ;)

Reynum aftur

Ok, enn er maður að byrja með bloggsíðu. Vonandi endist þessi lengur en hinar.

Ástæðan fyrir því að ég er að reyna að byrja að blogga aftur er að nú er það alveg pottþétt að til þess að ég geti lært það sem mig langar að leggja fyrir mig verð ég að flytja út. Þess vegna vil ég halda uppi bloggi svo að þegar ég flyt út getur fólk fylgst með mér.

Núna er öðru árinu mínu í Borgó lokið. Eitt ár enn og ég útskrifast loksins með stúdentspróf af listnámsbraut. Þetta er farið að verða óþolandi langur tími en ég er hamingjusöm á þeirri braut sem ég er á núna og það er allt sem skiptir máli.Það að ég hafi verið eitt sinn í Versló er eins og fjarlæg minning. Núna eru þetta bara aukaeiningar fyrir mér.En ok. Aftur í nútímann.

Skólanum var að ljúka og ég stóð mig vel í öllu nema stærfræði.
Mig minnir að það hafi verið:
Kvikmyndun: 8
Samtímamenning: 7
Hljóðsetning: 9 (kom mér mjög á óvart)
Grafísk hönnun: 9
Teiknimyndagerð: 10

Ég fann mig alveg í teiknimyndagerð. Það var ekkert smá gaman að leika sér í Flash og mig langar rosalega að læra á fleiri forrit og fleiri aðferðir til að gera teiknimyndir.
Ég ætlaði upprunalega að skila inn stop-motion mynd (þegar maður lætur brúður/hluti hreyfast með því að taka fullt af myndum af þeim og láta þau svo hreyfast ofurlítið á milli mynda) sem lokaverkefni. En þegar ég hafði loksins klárað að gera brúðurnar voru bara tvær vikur þar til við áttum eftir að skila inn verkefninu þannig að ég teiknaði (ath. ÉG, eintala) og setti allt upp í Flash á þeim tíma og náði meira að segja að hljóðsetja. Er ég stolt af sjálfri mér? Ó JÁ!

Hérna er myndin fyrir áhugasama: http://www.youtube.com/watch?v=0r0SroMK7pQ

Kennaranum mínum finnst að ég bara verði að leggja teiknimyndagerð fyrir mig. Sem ég er virkilega að pæla í. Ég ætla að læra grafíska hönnun en núna langar mig frekar að læra Illustration sem er meira teiknun, minna leikur með texta.
Þannig að ég er núna að leita mér að skóla sem er með bæði góða teiknimyndabraut og Illustration braut.
Samkvæmt kennaranum mínum væri best fyrir mig að fara til Bandaríkjana/Kanada og læra þar. Sem gæti verið gaman. Ég hef nú þegar fundið alveg hrikalega flottan skóla. Þar er frábær aðstaða, flott húsnæði og námið þar myndi áreiðanlega opna margar dyr fyrir mér.

Eina vandamálið er að skólinn er í San Francisco og árið kostar um 2. miljónir og þá er ég ekki að tala um það sem fer í mat eða húsnæði. Ég væri þarna í 3 - 4. ár þannig að skuldir mínar að loknum skóla væru um 6 eða 8 milljónir króna.

Þannig að nema ég vinni einn fjórfaldan í lottó þá er ég ekki að fara þangað. Plús það að ég veit ekki hvort ég gæti meikað einangrunina sem kemur með því að búa hinum megin á hnettinum.
Þannig að núna ætla ég að reyna að finna mér góðan skóla í London. Held að ég gæti orðið mjög hamingjusöm að búa í London og það er ekki endilega í hvaða skóla þú menntar þig, það er hvað þú gerir við menntun þína.
Aaaahhhh London. Það er bloggfærsla alveg útaf fyrir sig. En klukkan er orðin margt og þessi færsla jafnast nú þegar á við heila ritgerð.

Góða nótt allir!