Monday, July 27, 2009

Til gamans...

Í staðinn fyrir að nöldra eitthvað yfir vinnunni eða hversu hægt það er að taka að fá student-visa-ð mitt ætla ég bara að sýna ykkur þetta:




Ein besta vefmyndasaga í heimi. http://www.licd.com/

Wednesday, July 15, 2009

Shit!

Það er alveg ótrúlegt hversu mikið hlutirnir geta farið úrskeiðis. Jafnvel þegar að það ert þú sem hefur gert allt.

Eftir að hafa eytt einhverjum þrem mánuðum í að vinna í portfoliomöppunni minni og jafnvel enn meiri tíma í hugmyndavinnu og uppbyggingu á henni. Eftir að nákvæmlega ALLT sem gæti nokkruntíma klúðrast eða tekið óendanlegan tíma hefur klúðrast eða tekið óendanlegan tíma. Eftir að ég hef verið að fara gersamlega á taugum af áhyggjum og kvíða yfir því hvort ég nái að klára í tæka tíð fyrir skólann.

Eftir allt þetta sendi ég AAU stolt möppuna mína eftir að hafa fengið afbragðs einkunn fyrir hana í Borgó. Svo fæ ég póst. AAU tekur ekki við neinu öðru en digital portfolio möppun lengur.
Sem þýðir að ég get aðeins sent inn porfolio möppuna í gegnum netið. Ekki einu sinni hægt að skila á DVD.
Sem þýðir að ég get allt eins hent portfolio möppunni minni í ruslið. Hafði ekki einu sinni vit að senda hana bara í Lhí í staðinn fyrir að henda saman annarri crappy og skila henni inn.

Til að bæta gráu ofan á svart get ég ekki einu sinni update-að portfoliosíðuna mína, sem hefði bara tekið nokkra daga að gera flotta. Skólinn er líklega búinn að loka á aðganginn minn.

Hvað get ég núna gert? Keypt mér nýjan rándýrann vef? Kann ekkert að setja það upp hvort eð er. Sent möppuna í Adobe file? Hvað með kvikmyndina og teiknimyndirnar mínar? Þær sjást þá ekkert.

Akkurat núna langar mig bara að sitja og hlæja móðursjúklega