Thursday, August 13, 2009

Stundarskrá

Jæja, þá er þetta allt að fara að smella saman. Ég er komin með stundaskrá og reikninginn fyrir skólagjöldunum og húsnæðinu. Þarf að borga það allt sem fyrst. Fer líklega og tala við bankann núna í næstu viku.

Lýst ágætlega á tímana sem ég er að taka. Það er módeltími, 3D animation tími, tilrauna animation, kynning í animation, stop motion animation og storyboard tími.
Þetta er reyndar furðulegasta stundarskrá sem ég hef fengið. Fyrir það fyrsta er lengsti skóladagurinn minn á föstudögum eða frá 8:30 til 19:29. Svo er ég í tíma á laugardögum frá 22:30 til 24:00!!!! Já, ég er í tíma til miðnættis. Svo mæti ég í annan tíma 7:30 til 10:30 á sunnudaginn.
Held samt ekki að þetta verði eitthvað erfitt fyrir mig. Þetta er bara svona fram að jólum og ég ætti að geta fengið far með skólavagninum á laugardagskvöldum heim.

10. dagar...

Monday, August 3, 2009

Ágúst

Jæja, þá er geðveik Verslunarmannahelgi að kvöldi komin... fyrir suma.
Ég sjálf átti frekar venjulega helgi þar sem ég vann og bætti upp mikið svefnleysi síðustu viku. Ekki mikið að frétta þar. Hafði ekki einu sinni orku til að fara á djammið á afmælinu mínu.

Fór samt austur í bústað í risagrillveislu núna í gær. Fullt af ættingjum þar og við heilgrilluðum lamb. 18 manns í mat og við náðum samt ekki að klára það. Ég nennti ekki að gista þarna svo að ég keyrði í bæinn um hálf tvö í nótt. Mjög skemmtilegt ferð. Næstum enginn á veginum og ég gat spilað tónlistina mína eins hátt og ég vildi.

Allavega, núna þegar ég er búin í sumarvinnunni þarf ég að fara að skipuleggja næstu 20. daga áður en ég fer út. Mikið að gera og svo stuttur tími....
Er enn í veseni með skólann. Núna þegar þau hafa loksins fengið portfolio möppuna mína er allt að gerast til að ég fái ekki I-20 visað mitt. Þarf að redda því sem fyrst.

Þarf að drífa í því að setja bílinn á sölu. Fer með hann í þvott á morgun, tek myndir og sendi á mbl.is er að spá í að byrja verðið á 170þús.

Þarf að pakka niður herberginu mínu. Mamma og pabbi þurfa að ráðast í rosalegar lagfæringar á þeim hluta húsins og ég neita að leyfa öðrum að fara í gegnum dótið mitt.

Þarf að klára að mála myndina handa Lindu. Hún er næstum því búin en á bara eftir að gera smá lagfæringar.
Þetta eru aðalatriðin hjá mér í ágúst. Já, það og að virkilega flytja út (ef ég fæ einhverntíma visað mitt)

Stay tuned!