Friday, November 28, 2008

So it begins

Víííííííííííí
Ég fékk 9 í ensku í þriðja skiptið í röð.
Svo skilaði ég inn verkefnum annarinn í Skjámiðlun í gær. Þetta var kannski ekki það besta sem ég hefði getað gert en það er of seint að pæla meira í því núna. Er að búast við 7-8 í lokaeinkunn.
Two down, 3. to go!

Ég verð líklega á hlaupum með myndavél núna um helgina að taka upp fólk að tala á milli þess sem ég sit í herberginu mínu og skrifa um það að tala og set upp vefsíðuna um það að tala.

Er nokkurnvegin búin að ákveða hvernig það verður. Svarthvítt, tónlistamyndband. Þannig að þó að þetta sé um að tala verður líklega ekkert tal. Ég er meira að pæla í samskiptum fólks heldur en orðunum sem koma frá þeim.
Ef þið hafið gaman af því að tala og viljið birtast í myndbandinu mínu hafið endilega samband.
Sérstaklega kærustupör.

Monday, November 24, 2008

Skólalíf

Ég er komin með svo mikinn skólaleiða. Aldrei gerst áður að ég fái skólaleiða á fyrstu önninni. Í kjölfarið hef ég ákveðið að ef ég kemst ekki í AAU næsta vetur ætla ég bara að fara að vinna í eitt ár og sjá svo til.

En þrátt fyrir það lýtur þetta vel út hjá mér. Fékk 9. fyrir fyrirlesturinn minn um Cockney ensku sem er það hæsta sem ég hef fengið fyrir fyrirlestur og svo fengu allir í hópnum mínum 9. fyrir verkefnið Miðlun í sagnfræðilegu ljósi (http://bhs.is/asrun.agustsdottir/side/index.html)

Ég er ekki viss hvar ég stend í öðrum áföngum. Skjámiðlunarverkefnið mitt er farið að standa í stað en ég er orðin of leið á því til að vilja gera eitthvað í því. Kennarinn vill sífellt að ég bæti einhverju við en ég veit ekki hvað ég ætti svosem að gera.
Í Verkstæði í prentmiðlum hef ég fengið að sjá tvær einkunnir af 8. Báðir kennararnir (já, ég er með tvo kennara fyrir einn 8. eininga áfanga) vilja halda einkunnunum í gíslingu þar til í lok annar.

En nú er önnin næstum búin og ég fer bara í eitt próf en skila svo inn lokaverkefnum í prófvikunni líka. Ég er þannig séð ekkert kvíðin fyrir þessu eina prófi því að það er íslenska og ég hef alltaf getað náð henni þó að ég læri ekki mikið fyrir hana. Ætlaði samt að reyna að miða hátt núna því að við tókum fyrsta helminginn af prófinu núna í október úr bókmenntasögu (fékk 5.3 þó að ég hafi varla lært fyrir það) og seinni helmingurinn verður úr Sjálfstæðu Fólki og smásögubók. Ég er góð í því að lesa svo að ég ætlast til af sjálfri mér að ná hátt í því prófi.

Allavega, næsta önn verður ábyggilega betri. Síðasta önnin og svo kemur loks að því að maður fái stúdentahúfuna sína. Ég er reyndar skráð í dáldið mikið af einingum en ég stóðst ekki mátið þar sem þetta er t.d. minn síðasti séns á að læra táknmál.

Æi, þetta er leiðinlegt blogg. Reyni að lifa meira spennandi lífi fyrir það næsta.

Tuesday, November 18, 2008

Nördalover

Úff, sudda veður.
Í svona veðri vill maður helst kúra upp í sófa með einhverjum sætum. En þar sem ég hef ekki fundið mér neinn sætan ennþá þá er ég með hinn fullkomna staðgengil.
Heitt kakó og 2. þáttaröð af Ugly Betty. Ég er með alvarlegt skot í Henry endurskoðandanum og kærasta Betty. Veit ekki hvað það er, fyrst þegar hann birtist á skjánum kallaði ég upp "Have my babies!" og það hefur ekki batnað síðan þá.


Sunday, November 16, 2008

Djamm

Svo, ég fór á djammið núna í gær og ég verð að segja, þetta var eitt af mínum uppáhalds djammferðum.

Ok, svo þetta byrjaði allt í nýju íbúðinni þeirra Steinu og Hönnu þar sem við fáum okkur aðeins að drekka og tölum saman. Ég hafði aldrei hitt Hönnu áður svo að það var allt þetta bond thing og svona. Þar fékk ég líka pakka af ginsen tyggjó sem var það sem hélt mér vakandi (og pínu hæper) allt kvöldið.
Eftir það er haldið í partý hjá vinum hennar Hönnu. Þetta var þannig séð ekkert spes vegna þess að maður þekkti engan og það var mikið verið að tala um fólk sem maður þekkti enn síður. Samt áhugavert að segja að herra Norðurland var þarna, hefði verið afar mikið egóbúst að næla sér í hann. En Steina nennti voðalega lítið að hanga þarna svo að ég og hún fórum í bæinn (Hanna vildi ekki koma). Þá var haldið á Dillon og djammað þangað til þeir lokuðu. Elska tónlistina þar. Þar sem ég vildi ekki dansa strax við Steinu og Helgu (sem var þarna líka á tímabili) fór ég bara að kjafta við gaur sem heitir Ási og var í MH. Hann þurfti því miður að fara að leita uppi ölvaðan vin sinn.

Þar var líka fullt af þjóðverjum sem voru að fá rosalega athygli frá stelpunum. Ég sá einn sem mér fannst ekkert smá sætur og var að reyna að ná athygli hans allt kvöldið. Dansaði eitthvað við hann og talaði við hann en hann fór að lokuð burt með einhverri stelpu. Bömmer.
Mér fannst samt verst að ekki-alveg-jafn-sætur bróðir hans fannst ég æðislega heit. Hann fór með mig eitthvað fyrir utan staðinn og ætlaði að kyssa mig en ég neitaði. Ég vildi frekar bróður hans og vildi ekki eyðileggja þann möguleika. Gaurinn varð svo sár, mér fannst það svo leiðinlegt en eftir það kom hann ekkert aftur inná Dillon sem var kannski aðeins of mikið drama.

Eftir það hitti ég Steinu á barnum þar sem hún var að tala við einhvern gaur sem ég hélt að hún væri að hözzla. Svo er hann eitthvað að reyna að ná athyli minni og við endum í grettukeppni. Svo fer Steina og ég er að smsast við Yngva vin minn sem ég (á einhverju flippi) var að reyna að koma saman við Steinu. Kemur þá grettugaurinn til mín og þá kom í ljós að hann hefur frekar áhuga á mér en Steinu. Ha?
En eftir þetta lokar Dillon og Steina fer heim með einum þjóðverjanum og skilur mig bara eftir. Gaurinn eltir mig þegar ég stefni á Celtic að leita að Hönnu. Hann var frekar sætur en ekki alveg mín týpa. Ég var voðalega picky þetta kvöldið.
Kom svo í ljós að Hanna var enn í partýinu svo að ég hringi í Sigga. Hugsa með mér "vá, það hlýtur að verða fjör að djamma með honum". Þegar ég er að bíða eftir honum hjá Ponto eða Porto eða hvað þetta heitir fer ég rosalega að spjalla við einn gaur sem er að éta pizzu þarna fyrir utan. Við vorum alveg þvílíkt að spjalla þegar Siggi kom svo að ég held að hann hafi haldið að við værum rosalegir vinir. Ég hefði nú ekkert á móti að vera vinkona þessa gaurs (Eysteinn minnir mig að hann hafi heitið) voða sætur og skemmtilegur.

En allavega, þegar Siggi er loks mættur þá segir hann mér að hann þurfi að hlaupa heim til sín að ná í vini sína og geti ekki djammað með mér. Þá datt mér í hug að leita uppi Yngva, hann var þá á Celtic svo að ég rölti þangað bara ein í góðum fíling. Eysteinn hafði farið að leita uppi sína vini.
Á leiðinni hitti ég þennan rosalega töff hóp af MRingum sem tóku það afar nærri sér að sjá mig bara eina. Það var gaman að tala við þau, þeim fannst ég allavega mjög flott, hehe.
Sögðu að ég væri það falleg að gaurinn sem hafnaði mér (leyndó hver það er en vinir mínir vita það) væri með hafragraut í stað heila. Rosalegt egó búst :)

Svo hitti ég Yngva og vini hans á Celtic. Allir alveg rosalega fínir í jakkafötum nýkomnir úr afmæli. Vildi að ég hefði getað kynnt hann fyrir Steinu. Hún hefði ekki getað staðist hann svona fínan. Ég hékk með þeim þar sem eftir var kvöldsins eða til 5. Þá fórum við öll heim.
Það hefur tekið mig svona klst. að reyna að sofna því að ginsen tyggjóið var enn að virka.

En já, mjög skemmtilegt kvöld. Afar sátt við alla þessa athylgi frá strákunum.

P.S. Ég fór líka á djammið um seinustu helgi með Lindu, Kiddu og Ófa en það er önnur saga sem ég þarf að nefna seinna.

Thursday, November 6, 2008

Busy, busy, upptekin

Ég ætla bara rétt að renna yfir liðna og komandi atburði. Ekki vegna þess að ég held að það sé fólk þarna úti sem les þetta blogg heldur vegna þess að ef ég fer ekki að skrifa þessa hluti niður gleymi ég þeim.

Ég er að fara að hitta Ylfu á Hressó kl. 9 til að renna yfir þær myndir sem ég hef klárað fyrir barnabókina. Jamm, ég er 50% hluthafi í barnabók.
Dagmar réð mig til þess að hanna logo, bækling og boðskort fyrir sýninguna hennar í Newcastle. Ég er búin með logoið en þarf að reyna að gera bæklinginn á morgun.
Frábært að ég sé að fá svona mikla vinnu þó að ég sé ekki einu sinni útskrifuð úr Borgó ennþá.

Vinkonur mínar í skólanum voru líka að pæla í að ráða mig til sín til að klára skjámiðlagrafíkverkin þeirra fyrst að ég er sama og búin með mitt tveim vikum á undan áætlun. :)

Ég er ekki að standa mig jafn vel í að lesa Sjálfstætt fólk og ég ætlaði mér. En við erum samt að lesa þessa bók á fáránlegum hraða. Held að þetta sé ekki meira en mánuður sem við erum að taka í þetta auk verkefnaheftis.
Auk þess á ég að vera að lesa sirka 4. kafla í the Golden Compass á viku fyrir Ensku.

Önnur erfið verkefni eru t.d. hugtakið að tala. Ég á að skrifa sirka 10. bls. ritgerð um það fyrir MHS304 frá ýmsum fræðilegum sjónarhornum og skila inn sem fyrst.
Ég á svo að gera myndband um þetta hugtak og er að brainstorma. Kannski ég ætti að fá einhverja leikara? En ég hefði náttúrulega gott af því að animatea þetta.

Svo má ekki gleyma að ég er að gera kynningu um Cockney fyrir Ensku á mánudag. Hef reyndar mjög gaman af því en það er afar tímafrekt.

Svo á ég að vera búin að gera plakat fyrir MHL304 á þriðjudag og mér dettur ekkert í hug. Ekki oft sem það gerist, kannski er það vegna þess að það er svo margt sem mig langar að gera en veit ekki hvernig ég á að gera það.

Flott án fíknar myndin mín hefur verið sett á "póstkort". Ég ber ekki ábyrgð á neinu nema myndinni. Ef þið rekist á þetta á ég myndina af öllum krökkunum.

Wednesday, November 5, 2008

Go Obama!

Ég er að dunda mér að flytja þætti og bíómyndir frá flakkaranum hennar Lindu yfir á minn.
Með CNN kosningavökuna í gangi. Aldrei hélt ég að þessi dagur myndi koma en þetta mun kannski hafa mikil áhrif á mig ef ég flyt til BNA næsta ár.

Ef McCain vinnur hverfur allt mitt álit á Bandaríkjamönnum.

Tuesday, November 4, 2008

Hryllingur

Ok, svo ég fór eftir langan vinnudag í ÁTVR á föstudaginn í Vídeóhöllina að leigja mér hryllingsmynd. Var sérstaklega að vona eftir Birds (Hitchcock) þar sem ég var nokkuð viss um að verða ekki hrædd við að horfa á hana og sýna því hversu hörð ég var.

Hún var ekki til. Ég spyr um Plan 9 from Outher Space, hún var ekki til (svo sem ekki furðulegt), ég spyr um the Holy Grail, hún er ekki til. Ég var því orðin frekar svekkt á litlu úrvali þegar ég spyr um Blood and Chocolait. Jú, þau áttu hana til.

Mig langaði ekkert þrusu mikið að sjá hana en ég átti inni þrjár ókeypis myndir hjá Vídeóhöllinni þannig að ég lét mig hafa það.

Hún var svo hundleiðinleg. Endalaust væl. Ég er nú hrikalegur aðdáandi vælmynda en þar sem ég bjóst við rosalegri spennu varð ég fyrir miklum vonbrigðum.

Datt svo í hug að horfa á Cujo, sem ég á á flakkaranum, á laugardaginn. Ég náði ekki að fyrsta morði áður en ég slökkti á henni. Mig minnti ekki að Cujo væri svona hryllileg.

Svona er maður nú harður.

En talandi um það þá fékk ég eina rosalegustu martröð sem mér hefur nokkurntíma dreymt núna í nótt.

Hún byrjaði þannig að mamma og pabbi voru að draga mig og Birnu á hryllingsmynd með þeim. Hún hét Killer Doll. Hún var eitthvað um að lítil stelpa varð vitni að því þegar pabbi hennar drepur mömmu hennar og svo er einhver andsetin Barbie dúkka sem er mamma hennar og ég veit ekki hvað.

Áður en myndir byrjaði sátum við öll fremst í bíóinu (ólíkt alvöru bíóum voru það bestu sætin). Ég vildi ekki horfa á þessa mynd og ekki Birna heldur en pabbi og mamma voru eitthvað að tönglast á því að þetta væri mikilvægt fyrir andlegan þroska okkar eða eitthvað kjaftæði.

Myndin var varla byrjuð þegar ég er farin að halda fyrir eyrun og sitja í grúfu. Birna er hinsvegar aðeins minna smeyk og horfir á myndina.

Áður en langt um líður er ég komin aftar í salinn (einhverja hluta vegna komst ég ekki út úr salnum) og sit við hliðina á Dagmar og Magga. Eftir þetta man ég bara eftir hinum og þessum ógeðslegu myndskotum, ekkert hljóð því ég hélt fyrir eyrun og lafandi hræðslu.
Það var eitt atriði sem ég þorði að horfa á og þar var einhver maður í leikfimisklefa með sirka 6-7 strákum og er að hóta þeim. Þeir þykjast ekki vera hræddir en þá étur karlinn tvo putta af einum stráknum bara sí svona. Svo fara hinir strákarnir að reyna að ráðast á manninn og þá hendir hann brotinni spýtu í einn strákinn svo að hún fer inn um munninn á honum og út um hnakkann. Svo fer önnur spýta í gegnum heilann á honum.

Þetta jafnast kannski ekki á Saw (ég tala um nr.1 því það er sú eina sem ég hef séð) en ég hef bara þessa tilfinningu af mér í svörtum stórum salnum (það var fólk þarna en mér leið eins og hann væri tómur fyrir utan mig og Dagmar) að fela mig bak við stólbak. Ég grét bókstaflega úr hræðslu.

Ég held ekki að ég hafi verið jafn hrædd á ævi minni. Ekki góð tilfinning. Sérstaklega þegar ég vakna og er ein í húsinu. Ég var alveg skíthrædd og enn föst í draumnum. En ég róaði sjálfan mig með því að minna sjálfa mig á að það myndi aldrei, undir neinum kringumstæðum, gerast að pabbi og mamma færu með mig á hryllingsmynd þar sem mamma er meiri skræfa með hryllingsmyndir heldur en ég nokkurntíma.

Datt bara í hug að deila þessu með ykkur fyrir svefninn.