Tuesday, April 21, 2009

Ég fékk loksins einkunnina úr TOEFL prófinu sem ég tók 6. MARS. Skoraði 610 af 677 sem er mun hærra en ég þorði að vona. Ohh, hvað þetta bjargaði deginu mínum.
Byrjaði ekki vel. Mér tókst að sofa yfir mig big time því að við erum að tala um að fyrsti tíminn minn á mánudögum er kl. 11:10. Vaknaði ekki fyrr en nákvæmlega kl. 12.

Þoli ekki að sofa svona yfir mig, allavega ekki þegar ég hef gaman af tímunum sem ég er í. Missti líka tækifærið til að gera eitthvað í teiknimyndinni í dag. Æi, já, ég er að gera smá teiknimynd sem lokaverkefni í Borgó. Er ekki komin langt, næstum hálfnuð og ég þarf að vera næstum búin með það 30. apríl. En svo hef ég til 12. maí að fínpússa það. Svo að ég er bara að reyna að einbeita mér að hafa þetta svoldið gróft en að hreyfingarnar séu í lagi. Svo get ég bætt við fullt af smáhlutum í maí.

Verst að enskan er að trufla mig rosalega. Í síðustu viku dembdu þær á okkur 3-4 bls. rökfærsluritgerð um Twelfth Night eftir Shakespeare sem við vorum að klára að lesa. Ég er að mestu leiti búin að vera að vinna hana þessa vikuna og varla neitt komist áfram með teiknimyndina, að mér finnst. Svo er ég að fara í munnlegt próf í ensku núna á miðvikudaginn sem er úr öllu sem við höfum lært um veturinn. Þurfti að horfa spes á Misery myndina því að hún verður kannski á prófinu.

Svo förum við á Ökutímar núna 30. apríl og ég hef þá kannski til nokkra klukkutíma til að skrifa umfjöllun um hana þar sem þetta er síðasti skóladagurinn og við gátum ekki farið á leikritið fyrr.

Sem betur fer segi ég þá skilið við ensku en viðtekur að ég er að fara í lokapróf í táknmáli daginn áður en ég skila inn endanlegri teiknimyndinni. Ohhhhhhhhhhh

Til þess að ég nöldri aðeins meira þá var ég að komast að því að verslunarstjórinn minn hefur kannski ekki svigrúm frá yfirboðurum sínum að ráða sumarstarfsmenn sem þýðir að ég mun kannski bara vinna hlutastarf í sumar eins og í vetur. Ekki gott.
Svona til öryggis er ég farin að leita að annarri vinnu en ekki er mikið úrval, því miður.

En nóg um það. Ég ætla að reyna að sofa eitthvað áður en skólinn byrjar.