Thursday, October 29, 2009

Smá uppdate

Fannst ég þurfa að skrifa aðeins skemmtilegra blogg. Hitt var dáldið leiðinlegt, ekki þetta sama "haha, my life's awesome" eins og venjulega ;)

En það er erfitt að lifa spennandi lífi þegar maður þarf að vinna heimavinnu og hvorki maður sjálfur né vinir manns eiga nokkurntíma pening.
Útvarpsklúbburinn hélt Battle of the Bands núna um síðustu helgi. Það var mjög spennandi og margar góðar hljómsveitir. Fámennt en góðmennt.

Svo erum við Chelsea, Sasha og Eileen að fara á Murder Mystery Night í kvöld. Þetta er víst eins og leikurinn Cluedo nema með alvöru leikurum. Verður örugglega geðveikt gaman, vonandi er ég ekki alveg úr sakamálaæfingu. Hehe
En til þess að ég geti farið með hreina samvisku þarf ég að drífa mig að klára Experimental Animation heimavinnuna mína. Við erum núna að gera klassíska teiknimyndagerð þar sem við tökum myndirnar í gegn um pappírinn. Veit ekki hvernig ég á að útskýra það betur.
Eftir það byrjum við á að gera brúður. Víst mjög flókið ferli þar sem ég þarf að kaupa allskonar skrúfur og hjarir og stuff fyrir beinagrindina.

Allavega, þarf að drífa mig. Reyni að vera duglegri að setja inn myndir í framtíðinni

Monday, October 26, 2009

Intersession

Meiri upplýsingar um tímann um jólin.
Svo, ég var búin að ákveða að taka Color and Design á þrem vikum núna í janúar. Ég vissi að ég yrði að vera í tíma á hverjum degi frá 9-14 og þurfa að borga sirka 2.245 dollara aukalega eða 278.380kr.
Í fyrstu fannst mér það ekki mikið mál, fyrir utan kannski peninginn þar sem ég veit ekki hvort að LÍN myndi styrkja mig um hann. En ég gæti hugsanlega fengið gömlu vinnuna í Vínbúðinni aftur í sumar þar sem ég yrði ekki að taka áfangann í sumarskóla. Plús það að ég finnst það sóun að hafa allan janúar lausann og ekkert að gera.

Núna hins vegar komst ég að því að ég yrði rukkuð aukalega fyrir að sofa á dorminu á þessum tíma eða 45$ á nóttina. Ef við segjum að ég verði 23. nætur og gengið helst eins og það er væri það 128.340kr (1.035$). Það er 5.535kr. nóttin!
Eftir þetta bætist svo við efniskostnaðurinn og ég veit að ég á að mála amk. eitt málverk þannig að ég þarf allskonar drasl fyrir það.
Auk þess hef ég fengið þær upplýsingar frá Chelsea (sem fékk það frá vinkonu sinni sem tók áfangann í Intersession) að þetta er víst algjört helvíti. Þú gerir ekkert nema að læra allan þennan tíma þar sem þú þarft að kremja saman heimavinnutímanum. Venjulega þarftu að gefa hverju verkefni 10+ tíma á viku en í interession hefuru aðeins einn dag. Sjáumst seinna svefn.
Þannig að ég ætla að tala við námsráðgjafann minn þegar ég hef tíma til þess. Held að ég eigi séns á að taka hann næsta haust sem er auðvitað best. Sjáum til hvað gerist.

Allavega, tími til að ég sýni ykkur eitthvað af myndum úr skólanum.




Hérna er teiknistofan þar sem ég er að læra Analysis of Form og þarna er hesturinn minn (dótið sem ég sit á þegar ég teikna) með öllu dótinu mínu á.

Myndir sem ég teiknaði af mér og Chelsea svona til að punta upp á hurðina hjá okkur.

Ég hef fengið góð viðbrögð frá vinahópnum og eru flestir búnir að biðja mig um mynd af sér.
Nokkrar brúður sem Experimental Animation kennarinn minn gerði. Sá sem er fyrstu til að muna eftir þessum í miðjunni fær smáköku

Sunday, October 11, 2009

Atvinnubyttan

Ég náði að laga kommenta dótið. Núna ættu allir að geta sagt það sem þeir vilja og svo velja þeir bara Name/URL eða Anonymous.
Þið sem eruð með athyglisgáfuna í lagi hafið örugglega líka tekið eftir því að ég skrifaði lista hérna við hliðina á blogginu yfir fólk sem ég tala reglulega um. Held að þetta eigi eftir að koma sér vel fyrir alla. Ég get ekkert gert í skortinum á enter, sorry.

Daglegt líf er voðalega rólegt hérna. Við vorum með smá partý hjá Eileen í gær. Það var bara ég, Chelsea, Sasha og Gary sem náðum að mæta. Einn gaur sem heitir Mike kom við í smá stund líka.
Það var gaman, við drukkum bjór og máluðum Chelsea og Sashu með vatnslitum. Fyndið að ég virka eins og atvinnubytta við hliðina á sumum. Eileen var farin að riða til og frá eftir tvo bjóra. Meðan dempi ég í mig 9 - 10 bjórum á einu kvöldi og finn varla á mér. 5 af þeim voru Coronita (Corona í minni flöskum) og afgangurinn var vatn með bjórbragði sem einnig kallast Miller Lite.

Ég er nokkurnvegin algjörlega, smá, harð, næstum því ákveðin í að taka Color and Design áfangann á 3. vikum. Best að ljúka því bara af (og hvað á ég svosem að vera að gera heima allan þennan tíma líka?). Jafnvel þó að það verði erfitt. Þá er ég örugg um að geta verið allt sumarfríið heima í staðinn fyrir að taka sumarskóla og geta kannski ekkert unnið.

Við Sasha og Chelsea erum að plana að leigja saman næsta vetur. Það er svo fokdýrt að leigja hjá skólanum og alltof strangar reglur. En það hefur náttúrulega sína kosti eins og örugg bygging og smá félagslíf.
En það borgar sig mun meira að leigja sjálfur. Sérstaklega ef við fáum íbúð nálægt Sutter byggingunum því þá erum við nálægt kaffiteríunum, strætóstoppustöðvunum og þeirri skólabyggingu sem ég á eftir að eyða sem mestum tíma í.
Plús það, þá er aldrei að vita nema ég geti fengið mér kött :)

Tuesday, October 6, 2009

Hugsun um næstu önn

Ég fór í dag og skráði mig í tíma fyrir næstu önn. Þeir virka mun meira spennandi en þeir sem ég er í núna. Ég þoli ekki Storyboarding t.d. hann er dýr og erfiður og mér finnst ég ekki vera að læra neitt gagnlegt í honum. Computer Graphics for Animation er líka mjög svefndrukkinn tími en það er meira stofunni að kenna. Þar er ég allavega að læra réttu ensku hugtökin þó að ég viti mest allt sem ég er að læra fyrirfram. Fæ allavega góða einkunn í lokinn á þeim tíma.

Allavega, núna á næstu önn fer ég í Figure Drawing (módelteikning), Figure Modeling (bý til líkamsparta úr leir), History of Animation (Teiknimyndasaga) og Written Communication Requirement (Enska).
Komst að því að ég fékk nokkra áfanga metna. Þar á meðal stærðfræði... já, ég trúi því varla heldur.
Ég þarf svo að plana hvenær ég á að taka Color and Design tíma. Ég get í síðasta lagi tekið hann næsta haust en það er betra að taka hann fyrr en seinna. Get tekið hann á sumarönn en ég get líka komið snemma aftur úr jólafríi og tekið hann á þrem vikum áður en vorönn byrjar.
Við stelpurnar vorum samt að tala um það í gær. Ég væri í tíma upp á hvern einasta dag (held líka um helgar) í þrjár vikur frá 9:00 til 14:00. Þetta kostar slatta og spurning hvort ég væri ekki alveg útbrunnin áður en sumarið kemur en á móti gæti ég komið heim í sumar og unnið. Þarf að hugsa betur um þetta.

Langar að vita hvað ykkur finnst.
Btw ég hef heyrt frá nokkrum að þeir geti ekki kommentað á þessa síðu þannig að ég ætla að deila linknum á facebook og þið getið kommentað þar.