Sit upp í skóla að downloda nokkrum þáttum og tónlist. Ég á eftir að sakna þess að geta downlodað í skólanum því að það er bæði fljótlegra og ódýrara en að gera það heima. Þarf að drífa mig í að tala við Símann um að fá meira niðurhal hjá þeim.
Var að fá einkunnirnar mínar núna í dag. Er með 8,8 í meðaleinkunn hjakk, hjakk.
Enska: 9
MHL407 (lokaverkefni, portfolio oflr.): 9
Módelteikning: 9
Táknmál: 7
Skólasókn: 10
Eins og allir sem þekkja mig vita þá er ég að fara að útskrifast núna á laugardaginn. Ég er orðin mjög spennt fyrir því að ljúka loksins menntaskóla og fá stúdentsprófið mitt. Þetta hefur verið gaman en nú er nóg komið.
Tími til að vinna eins og hundur í allt sumar (ef ég fæ vinnu /#$"!&&%$//$%) til að eiga nógan pening þegar ég flyt svo út eftir einungis 3. mánuði. Er ekki enn búin að ná þessu þó að margir séu búnnir að spyrja mig. Ég er að flytja til útlanda, ein, langt í burtu.....
Neibb, trúi því ekki enn, held að ég verði að vera komin þangað til að trúa því.