Sunday, February 15, 2009

Febrúar

Ok, 2009 hefur hingað til ekki verið svo slæmt.
Mér gengur alveg hreint ágætlega í skólanum. Við áttum að skila inn kynningu á Shakespeare leikriti í ensku sem ég gerði í Flash.
Það voru tvær ástæður fyrir því 1. ég vissi að fólk ætti auðveldara með að fylgjast þannig með og 2. mig vantaði meira animation fyrir porfolio möppuna mína.

Ég er skráð í TOEFL enskuprófið núna 6. mars nk. Það er ekki langt þangað til og ég er að verða pínu kvíðin. Ég hef þannig séð ekki verið neitt að læra fyrir það hingað til.
En ég horfi daglega á ótextað, enskutalandi sjónvarpsefni og les enskar bækur og tímarit þannig að ég ætti að vera í góðum málum þannig séð. Að ég tali nú ekki um ensku 603 þar sem við tökum vikulega hlustunarpróf.
En ég þarf að kynna mér betur skriflega hlutann og hvernig efni við verðum prófuð úr.

Annað í gangi er að ég er að fara til London með enskubekknum 19-22. mars. Við ætlum á leikrit og að versla og djamma og vonandi, á söfn. Þetta verður í síðasta skiptið í dáldið langan tíma sem ég fer til London þannig að ég verð að vera mjög virk í þetta skiptið og koma mér inná almennilegt safn eins og ég hef alltaf ætlað að gera.

Er líka að spá í að fara á Portabello Road (flóamarkaðinn í Notting Hill) og kannski finna mér ódýra gamla ferðatösku eða myndavél. Er ekki alveg viss hvað ég ætti að gera við það en mig hefur alltaf langað í svoleiðis.
Ef ég finn mér stóra, gamla, leðurtösku get ég kannski gert smá endurbætur á hana (sett hjól t.d.) og notað hana eins og venjulega tösku.

Ég reyndi að fá Kríu með mér en hún gat það ekki. Það er mikil eftirsjá eftir henni því að hún hefði örugglega notið sín þarna. Sérstaklega á Portabello.