Friday, October 31, 2008

Halloween, halloween, halloween.

Mikið vildi ég óska þess að upplifa alvöru Halloween. Klæða sig í hryllilegan búning (ath. playboy kanínur eða annar efnislitlir búningar eru ekki hryllilegir) og djamma og hræða. Örugglega rosalega gaman. Hver veit nema ég fái að upplifa þetta næsta ár.
En mér datt annars í hug að halda uppá Halloween með því að taka á leigu einhverja hryllingsmynd. Það eru nokkrar sem mig hefur lengi langað að sjá eins og Blood and Chocolait, Carrie, Birds og Plan 9 from Out of Space.

Sú seinni er í raun ekki hægt að flokka sem hryllingsmynd því að hún er mjög léleg (Ed Wood mynd) en mér finnst að mér sé skylt að sjá þessa mynd einmitt útaf því. Það er ekki oft sem maður sér hryllingsmynd þar sem geimverur fljúgja um í lampaskerm föstum í vír og breyta líkum úr kirkjugörðunum í uppvakninga til að taka yfir jörðina.

Samt týpíst að ég gugni á því að horfa ein á hryllingsmynd og taka Monthy Payton and the Holy Grail í staðinn.


Thursday, October 30, 2008

Stéttarskipting nemenda

Ok, vitið þið hvað fer virkilega í taugarnar á mér?

Það að háskólanemar eru taldir æðri en menntaskólanemar. Ég fékk póst núna áðan frá group sem ég er í á facebook sem heitir Betri kjör fyrir námsmenn þar sem stóð að það væri frír bjór á Hverfisbarnum í kvöld fyrir þá með háskólaskírteini. Fyndið, þegar ég skráði mig í þennan hóp hélt ég að það væri fyrir námsmenn, ekki háskólanema.

Ég geri mér grein fyrir því að flestir í menntaskóla eru 16-20. ára. Ég geri mér líka grein fyrir því að flestir sem eru í menntaskóla búa enn hjá foreldrum. Flestir, ekki allir.
Ok, ég bý enn í foreldrahúsum því að ég hef ekki kærasta/leigufélaga til að búa með eða nóga peninga til að leigja mína eigin íbúð. Ef svo væri hefði ég flutt út þegar ég var 16.
En margir háskólanemar eru samt enn að búa heima hjá sér. Þau fá afslætti og fríðindi.
Síðan Hraðbraut var stofnað hafa nemendur haft tækifæri á að útskrifast allt að 18. ára gamlir. Er tékkað á skílríkjum þegar sýnd eru háskólaskírteini?

Ein vinkona mín í Borgó er 23. Hún býr með kærastanum og dóttur sinni í þeirra eigin íbúð. Hún getur ekki tekið margar einingar í einu útaf því að hún þarf að geta séð um dóttur sína. Það er ástæðan fyrir því að hún er enn í skóla, ekki vegna þess að hún nennir bara ekki að læra.
Svo var mikil hætta á að kærastinn hennar myndi missa vinnuna og þar sem hann er eina tekjulindin á heimili þeirra hefði það getað komið þeim í stóran vanda. Hún getur ekki fengið styrk vegna þess að hún er í menntaskóla. Þau myndu fá styrk ef kærastinn færi í háskóla.

Þetta er svo mikið óréttlæti. Afhverju er komið fram við menntaskólanema eins og við eigum ekki aukin fríðindi skilin? Erum við ekki jafn fín og aumingja, fátæku snillingarnir sem fara í háskóla? Nú þegar kreppan er skollin á munu margir skrá sig í háskóla til að getað komist í ódýrar íbúðir og aukin fríðindi í stað þess að vera á atvinnuleysisbótum.

Og hvað með Þjóðarbókhlöðuna? Ég veit ekki um betra dæmi um stéttarskiptingu nema en þar. Æðstir eru þeir í framhaldsnámi eða doktorsnámi. Þeir fá sér lestraraðstöðu og aukinn aðgang af upplýsingum og ritum. Næstir eru undergrad eða aðrir háskólanemar. Háskólanemar fá forgang að lestraraðstöðum á próftímum. Þar sem ekki er nógu mikið af borðum bara fyrir háskólanemar er ekki séns fyrir lágkúrulegan menntaskólaskítinn að fá að komast þar að. Kannski ef maður er tilbúinn að sitja á gólfinu.
Ekki segja að ég geti bara lært í mínum eigin skóla. Lesaðstaðan í Borgó er kannski nóg fyrir 40 nemendur. Það er meira pláss í Verzló en þá þarftu að mæta kl. 7 um morguninn.

Afsakið mig, ég ætla að snúa mér aftur að mínum lítilsverðu heimaverkefnum.

Tuesday, October 28, 2008

Danmörk

Jæja, nú er mér aftur farið að leiðast það mikið að nenna að blogga.

Köben var skemmtileg. Ég verslaði ekki alveg jafn mikið og ég ætlaði en það er kannski fyrir bestu þar sem gengið var og er 20 kr.
Ég og Guðrún vorum á hóteli rétt hjá aðallestastöðinni og þurftum bara að labba kannski um kílómeter til að komast á Strikið. Þar hengum við dáldið mikið. Skoðuðum ljósmyndasýningu, fundum örugglega versta pizzastað í Danmörku, horfðum á götulistamenn og ég varð ástfangin af pönnukökunum á einu kaffihúsinu.

Stefnan var að fara á djammið en eftir að hafa gengið allan daginn höfðum við ekki nóga orku til að fara af herberginu nema einu sinni þegar við löbbuðum fram og aftur um hverfið í leit að ákveðnum veitingastað.
Skruppum samt einu sinni í Tívólíið. Þeir voru þá akkurat að opna fyrir Halloween og það var allt skreytt með graskerum og nokkrar brjóststórar nornir sýndu töfrabrögð.

Við kíktum líka í bíó. Ég sannfærði Guðrúnu að sjá WallE með mér. Ég held að WallE sé orðin ein af mínum uppáhalds myndum. Ég verð að kaupa hana þegar hún kemur út.
Held samt að hún slái ekki út KungFu Panda. Ég veit ekki hversu oft ég hef horft á hana og enn ekki komin með leið.

Einn götulistamaðurinn sem við horfðum á var frekar áhugaverður. En ég er kannski hlutdræg vegna þess að ég var svo "heppin" að vera valin að hjálpa honum. Ég og Guðrún mættum frekar snemma, þegar hann var enn bara rétt að byrja og það var ekki mikið að fólki komið. Þá spurði hann okkur hvaðan við værum, við svöruðum. Þegar lengra var liðið á sýninguna benti hann svo á mig og sagði "What's your name?" Ég sagði "Sandra" því að ég heiti það. Þá sagði hann "Come with me Sandra... I can hear from your accent that you are from Iceland". Vá, rosalega er hann klár. Hann var samt mjög skemmtilegur. Ég var sett í full djobb að aðstoða hann ásamt einhverjum Svíja og litlum strák frá Danmörk. Ég hef aldrei verið valin í eitthvað svona áður þannig að þetta var ágætt.

Núna er ég nýkomin úr matarhléi þar sem forsetinn var að halda fyrirlestur. Þetta er víst eitthvað átak hjá honum að mæta í skóla á landinu og tala um mennt er máttur og svona. Þetta var frekar upplýsandi. Gaman á sjá að forsetinn sé ekki algjörlega glær.

En nú verð ég að fara. Er að kynna tímarit sem ég var að hanna.

Wednesday, October 8, 2008

Köben á morgun

... og líklega engin Glasgow ferð.

Ég er umkringd núna háværum meðnemendum að tala um að í ljósi kjaftæðis gengisveltu ætlum við kannski að sleppa því að fara til Glasgow og kíkja til Akureyrar í staðinn.

Lýst þokkalega á það. Góð leikrit, listaháskóli til að skoða og Brynjuís. Glasgow hvað?

Anyways, flýg út kl. 7:45 næsta morgun. Guðrún flýgur 7:15. Aha, þú last rétt.

Guðrún aparassgat dró svo lengi að panta sitt flug að flugið sem við ætluðum að fara með (IcelandAir) að það var orðið dýrara en IcelandExpress. Þannig að hún flýgur til og frá DK með Iceland Express og ég með IcelandAir. Klúður!

Gæti svosem verið verra. Ég flýg bara hálftíma á eftir henni.

Ég held að ég eyði minnst af peningunum mínum í föt og dót fyrir sjálfa mig. Ég þarf ekkert svo mikið nýtt dót. Best að nota peningin frekar í jólagjafir.

Ætla líka bara að njóta þess að vera þarna. Það var ekki fyrr en Linda í vinnunni benti mér á það að ég fattaði það að ég sé þarna í fríi. Ég þarf ekki að vera búin að skipuleggja allt og ég og Guðrún getum bara labbað um borgina.

Verð að muna að kaupa stærri kubb í myndavélina mína svo að ég geti fest borgina á filmu... ég meina kubb.

Held að það sé ekki meira að segja. Við sjáumst eftir helgi.
Mynd eftir http://noezzer.deviantart.com/

Thursday, October 2, 2008

Vika fortíðar og framtíðar

Það hefur nokkurnvegin verið ákveðið að bekkurnn fari til Glasgow í febrúar. Við biðjum gengisguðina um að hafa hækkað krónuna á þeim tíma.

Við Guðrún erum að búa okkur undir Köben ferðina núna þarnæstu helgi. Versla, söfn, skoðunarferðir, djamm. It's going to be LEG-END-ERY!

Fór á Hlöðuball núna síðustu helgi með vinnunni. Ég var búin að lofa að spara pening með því að fara ekki á djammið núna í vetur en ég borgaði líka ekki eyri fyrir kvöldið.

Ferðin í hlöðuna var frítt, áfengið var frítt, farið heim var frítt. Takk, Linda fyrir farið. Birkir, you are useless.

Ballið var mjög gaman þó að maður hafði búist við fleira fólki. Komst að ýmsum leyndarmálum hjá vinnufélögunum og missti eytt af mínum eigin út úr mér. Spurning hvaða áhrif það hefur.

Svo er ég að fara í litun núna á mánudaginn. Var í klippingu síðasta mánudag. Heimskulegt að gera þetta í sitthvorri vikunni en mér datt hugmyndin af lituninn eiginlega í hug bara í stólnum. Get ekki beðið eftir að sjá það. Hárið á mér eftir að vera svo töff. Verð svo að kaupa mér föt sem passa þessu nýja útliti mínu. Ég er ekki að segja að ég hafi fengið nýjan persónuleika með nýju klippingunni en núna er mig farið að langa til að vera aðeins öðruvísi í útliti. Meira sexí.

Jæja, hef ekki meira að segja í dag.