Wednesday, September 30, 2009

Liðin vika

Ekki mikið búið að gerast sem ég kæri mig um að blogga um. Tók þátt í samvinnuverkefni AAU og einhvers Japans systurskóla núna um helgina. Við kepptum í liðum að búa til hatta sem höfðu einhverja þýðingu og stuff. Mitt lið vann ekki. Mjög gaman samt en hafði ekki alveg eins mikil gildi í mínum huga og sumra annarra.

Ég er líka formlega gengin inn í útvarpsklúbbinn þeirra Chelsea og Söshu. Við erum að plana Battle of the Bands núna 24. okt. Svo á að gera útvarpstöðina að veruleika núna eftir jól. Ég hef ekki hugsað mér að vera í loftinu. Gæti samt vel verið að ég vinni eitthvað bak við tjöldin. Ég og Sasha verðum líklega saman í því að hanna flestar auglýsingarnar (flyers) og plaköt. Svo sagði Chelsea að hún ætli að gera mig að Alþjóðatengilið eða eitthvað svoleiðis. Flottur titill en það þýðir að ég verði í því að vekja áhuga alþjóðanemenda. Veit ekki alveg hvort að það verði að veruleika þar sem Sasha sagði að ég yrði að vera með græna kortið til að geta unnið við það. En þar sem stöðin er innan AAU er aldrei að vita nema það sé samt hægt að ráða mig.

Var að tékka í morgun á netinu ef það eru einhver góð hlutastörf á lausu í skólanum. Ekki mikið að finna. Mesta lagi að ég fengi vinnu á bókasafninu en þar sem ég hef ekki reynslu af bókasafnstörfum og er ekki alveg 100% með enska stafsetningu á hreinu gæti það verið hálf tilgangslaust að sækja um.
Er að vonast til þess að Helga og Lexi þurfi barnapössun fljótlega svo ég geti unnið mér inn einhvern pening.

Talandi um það þá stofnaði ég bankareikning núna áðan. Kemur sér örugglega vel að þurfa ekki að nota íslenska kreditkortið mitt/hrúgu af pening hvert sem ég fer.
Allavega, er að fara í aukatíma "workshop" núna eftir smá. Ég fæ engar einingar eða einkunnir fyrir að mæta í þá tíma en þeir eru góðir ef maður vill bæta við þekkingu sína en nennir ekki/getur ekki skráð sig sérstaklega í tíma.

Wednesday, September 23, 2009

Íslenska innrásin

Í hádeginu í dag rakst ég á einn íslenskan strák. Þetta er annar íslendingurinn sem ég hef rekist á í skólanum.
Kynntist þeim fyrsta á leiðinni heim um daginn. Hann heitir Pétur og er í Illustration. Vissi að hann væri íslenskur því að hann var í Dead peysu úr Nonnabúð. Fyndið að ég kynntist svo vinkonu hans nokkrum dögum seinna.

Þessi sem ég hitti í dag heitir Villi og er í grafískri hönnun. Ég starði lengi á hann í kaffiteríunni til að vera alveg viss að ég þekkti hann. Hann var í Verzló. Við unnum bæði við litla leikritið einu sinni og ég held að hann hafi verið forseti nemendaráðs.

Við erum víst um 7 allt í allt í skólanum, jafnvel fleiri. Fyndið að innan um þúsundir nemenda maður geti samt auðveldlega rekist á íslendinga. Kannski ætti ég að byrja að labba um með íslenska fánann út um allt og sjá hvað gerist.

Sunday, September 20, 2009

Justin Kohn

Eins og ég hef nefnt áður er ég í áfanga sem heitir Experimental Animation eða Tilrauna teiknimyndagerð þar sem við erum að vinna með brúður og stop-motion.
Ég ætla að nota þetta tækifæri og monta mig af kennaranum mínum. Hann heitir Justin Kohn og þið getið séð brot af verkum hans hérna:

http://www.youtube.com/watch?v=SEvpxjcW8QM

Þessi maður kennir mér. Mér. Þið megið byrja að öfunda mig núna :)

Thursday, September 17, 2009

Bla, bla, bla

Innblásin af fallegum hvattningarorðum hennar Auðar (sjá komment í síðasta bloggi) ætla ég að hunskast að skrifa meir um feikilega áhugavert líf mitt.

Þar síðasta helgi var frí á mánudag vegna Labor Day. Í því tilefni fórum við nokkur á ströndina um kvöldið að kveikja varðeld. Það er víst megin ástæðan fyrir því að fólk fer á ströndina í SF, sjórinn er yfirleitt of kaldur til að synda í.
Þetta átti að vera eitthvað rosalega fjölmennur varðeldur því Chelsea er einn af stofnendum skólaútvarps klúbbs og bauð fullt af fólki til að hitta okkur. En þetta klúðraðist dáldið því að við keyptum ekki nógu mikið af eldivið til að endast einu sinni í klukkutíma, áður en afgangurinn af hópnum átti að mæta.
Þar sem við vorum öll staurblönk og höfðum eytt síðustu krónunum í bjór ákváðum við að reyna að sníkja smá pláss hjá öðrum hópum þarna. Auðvitað þurftum við að lenda á eina hópnum sem var ekki að drekka og þurftum við því að fela afganginn af bjórnum til að mega vera hjá þeim. Þau voru samt mjög skemmtileg, einhver KFUM/KFUK hópur.

Daginn eftir fór skólinn svo á listahátíð í bæ rétt fyrir utan SF. Skólinn leigði ferju bara fyrir okkur (einkaskóli baby!). Það var mjög gaman, falleg list og meira að segja rokktónleikar með fullt af gömlum töffurum. Chelsea sagðist hafa fundið mikla marjúna lykt en einhvernvegin grunar mig að það hafi frekar gömlu hipparnir en unga fólkið sem reykti það þarna. Sá um níræða konu í hjólastól í algjörum fíling rétt við stóra sviðið.

Veðrið hérna er enn að koma mér að óvart. Er búin að nöldra talsvert yfir hitanum hérna, sérstaklega þegar ég þarf að labba langar vegalengdir í matvörubúðir.

Samt sem áður var ég mjög spennt að fara í afmælisveislu hjá dóttur einnar vinkonu minnar hérna. Hún, mamman, heitir Helga og er búin að búa hérna í meira en 15. ár. Mamma kynntist henni í gegnum vinnufélaga og er Helga búin að vera voðalega vinaleg við mig síðan ég flutti hingað og auðvitað Lexi konan hennar líka. Sóla, 4. ára dóttir þeirra, er líka búin að vera að biðja um að hitta mig nokkuð oft.
Mér var boðið um seinustu helgi í afmælið hennar Sólu sem átti að vera haldið við eitthvað vatn í Berkley Hills. Ég var orðin nokkuð spennt því að spáin var góð og ég ætlaði að nota tækifærið og jafna aðeins brúnkuna mína. Kl. 8 á laugardaginn staulast ég inn á baðherbergi og set á mig sólarolíu. Um leið og ég er búin að gera mig klára heyri ég "KABÚMM". Það voru komnar þrumur og eldingar (ein eldingin lenti í blómapotti skammt frá húsinu mínu og setti nokkrar bílaþjófavarnir af stað). Týpískt.

En afmælið heppnaðist samt vel þó að það hafi verið haldið heima hjá Helgu, Lexi og Sólu. Ég gaf Sólu mynd af hafmey sem hún gat litað sjálf og hún varð ekkert smá ánægð með hana.

Fyrir utan þetta er ekki mikið að frétta. Skólinn gengur ágætlega þó að ég er í voðalegum byrjendatímum. Bæði gott og slæmt. Gott því að mig vantar aðeins upp á orðaforðann á sumum sviðum og slæmt því að ég er nokkurnvegin að endurtaka tímana mína í Borgó.
Hef samt á tilfinningunni að það munu breytast því að t.d. í teiknitímanum mínum fékk ég þá heimavinnu á mánudaginn að teikna sívalinga og kassa, sirka 4 af hverju. Núna í gær fékk ég það verkefni að teikna kúlu/egg. Önnin var hálfnuð í Borgó áður en við fórum að teikna egg.

Teiknikennarinn minn er algjört krútt. Varð voðalega spenntur þegar hann frétti að ég væri frá Íslandi (frekar algeng viðbrögð reyndar) og sagði mér að hann hefði einu sinni millilent þar á leið til Frakklands og keypt sér einn bol. Hann var í þeim bol í síðasta tíma bara fyrir mig :)
Hann er að notast við minnisaðferð til að muna nöfnin okkar og alltaf þegar hann kallar á mig er það "Sandra, you're from Iceland".
Svo, þegar hann fór yfir heimavinnuna mína gagnrýndi hann hana en sagði svo "...but it's well done... GO ICELAND" Hehehe



Eileen, Chelsea, ég og Leslie á listahátíðinni. Sasha tók myndina

Sunday, September 6, 2009

Long time no see

Loksins kemur maður sér í það að blogga. Mikið er búið að breytast í lífi mínu á stuttum tíma. Vildi að ég hefði getað bloggað rétt eftir að ég kom út og kolféll fyrir Seattle. Hún er þannig séð ekki besta túristaborgin. Rignir og ekki mikið að skemmtiefni nema Spaceneedle og Picke Place Market. Sem við fjölskyldan fórum einmitt á þennan eina dag okkar í borginni. Hrikalega krúttleg borg og það þyrfti mjög litlar fortölur á mig til að flytja þangað.

Svo kom maður til San Francisco. Fyrstu kynni voru ekki alveg jafn góð og í Seattle. Aðkoman í hótelið var ekki alveg eins og var lofað og við gengum hættulegu leiðina til Union Square fyrsta kvöldið okkar. En ástandið batnaði og ég kann afar vel við mig hér. Bara að passa sig að labba ekki í þann hluta borgarinnar sem heitir Tenderloin. Það er útigangshverfið.

Við fjölskyldan gengum upp götuna mína í leit að húsinu mínu og hluti af götunni liggur í gegnum Tenderloin. Við gegnum fram hjá hóteli fyrir heimilislausa sem ég mundi eftir úr myndinni Pursuit of Happyness.

Ég er búin að vera hér í næstum því tvær vikur. Ég bý í stúdíó íbúð nr. 22 í Vermeer byggingunni. Hér er mynd af húsinu:
Herbergisfélaginn minn heitir Chelsea og hún er frá Kentucky. Hrikalega skemmtileg stelpa og ég er búin að vera að hanga mest með henni og vinkonum hennar Sashu og Leslie.
Sasha hefur alveg sérstaklega mikinn áhuga á Íslandi og við erum í þessum töluðu orðum að hlusta á Mammút diskinn minn sem þær fíla í botn.
Skólinn byrjaði á fimmtudaginn og ég er búin að fara í 3 af 4 tímunum mínum. Síðasti er á miðvikudaginn og það er teiknitíminn. Núna strax er ég búin að fá heimalærdóm í Tilrauna teiknimyndum eða Experimental Animation. Við vorum sett í hóp og áttum að gera stutta stop-motion mynd (oftast brúðumyndir) með "found opjects" eða drasli.
Minn hópur ákvað að gera verkefnið bara strax í dag til að koma því frá. Aðalpersónurnar voru sokkur sem önnur stelpan kom með og skórinn minn. Maður veit aldrei hvað kennarinn segir en mér finnst þetta frekar gott miðað við fyrsta verkefni.
Ég verð alltaf meira og meira sátt við ákvörðun mína að koma hingað. Skólinn er frábær og aðstaðann er fáránlega góð. Mun betri en Listaháskólinn gæti nokkurntíma boðið uppá. Ekki að ég hafi eitthvað á móti Listaháskólanum en þetta er bara svona.
Það er margt og mikið fleira sem ég hef að segja eins og partýið sem ég fór í í gær þar sem við fórum í Beer Pong og leituðum að Valla eða þegar skólinn fór í dýragarðinn. Fyndið að sjá svona stóran hóp þar sem flest allir eiga flottari myndavél en ég (sem er svosem ekki erfitt).
En þetta er nóg blaður í bili.
Ég skal skella upp myndunum þegar ég nenni.