Ég er komin með svo mikinn skólaleiða. Aldrei gerst áður að ég fái skólaleiða á fyrstu önninni. Í kjölfarið hef ég ákveðið að ef ég kemst ekki í AAU næsta vetur ætla ég bara að fara að vinna í eitt ár og sjá svo til.
En þrátt fyrir það lýtur þetta vel út hjá mér. Fékk 9. fyrir fyrirlesturinn minn um Cockney ensku sem er það hæsta sem ég hef fengið fyrir fyrirlestur og svo fengu allir í hópnum mínum 9. fyrir verkefnið Miðlun í sagnfræðilegu ljósi (http://bhs.is/asrun.agustsdottir/side/index.html)
Ég er ekki viss hvar ég stend í öðrum áföngum. Skjámiðlunarverkefnið mitt er farið að standa í stað en ég er orðin of leið á því til að vilja gera eitthvað í því. Kennarinn vill sífellt að ég bæti einhverju við en ég veit ekki hvað ég ætti svosem að gera.
Í Verkstæði í prentmiðlum hef ég fengið að sjá tvær einkunnir af 8. Báðir kennararnir (já, ég er með tvo kennara fyrir einn 8. eininga áfanga) vilja halda einkunnunum í gíslingu þar til í lok annar.
En nú er önnin næstum búin og ég fer bara í eitt próf en skila svo inn lokaverkefnum í prófvikunni líka. Ég er þannig séð ekkert kvíðin fyrir þessu eina prófi því að það er íslenska og ég hef alltaf getað náð henni þó að ég læri ekki mikið fyrir hana. Ætlaði samt að reyna að miða hátt núna því að við tókum fyrsta helminginn af prófinu núna í október úr bókmenntasögu (fékk 5.3 þó að ég hafi varla lært fyrir það) og seinni helmingurinn verður úr Sjálfstæðu Fólki og smásögubók. Ég er góð í því að lesa svo að ég ætlast til af sjálfri mér að ná hátt í því prófi.
Allavega, næsta önn verður ábyggilega betri. Síðasta önnin og svo kemur loks að því að maður fái stúdentahúfuna sína. Ég er reyndar skráð í dáldið mikið af einingum en ég stóðst ekki mátið þar sem þetta er t.d. minn síðasti séns á að læra táknmál.
Æi, þetta er leiðinlegt blogg. Reyni að lifa meira spennandi lífi fyrir það næsta.
No comments:
Post a Comment