Monday, March 30, 2009

Update

Jæja, þá kemur maður sér loksins í það að blogga aftur. Reyndar hef ég þannig séð ekki haft það mikið að segja núna síðustu tvær eða þrjár vikur því að það eina sem hefur komist að í hausnum á mér er Portfolio mappan mín.
Alveg ótrúlegt hvað þetta var að gera mig vitlausa og nánast ekkert annað komst að í hausnum á mér þessar vikur nema Portfolio mappan og önnur heimavinna.
Mörg ævintýri tengd því en mest bara eitthvað svona nördadót.
Kvöldið sem stendur uppúr er líklega þegar ég, Kría og Tinna pöntuðum okkur pizzu og fórum svo í myndatöku hjá Óla.

Samt æðislega gaman hvað allir í bekknum eru orðnir nánir núna. Það er núna pæling að taka hóp óléttumynd af okkur og þar sem Hilmar er eini strákurinn í bekknum verður hann pabbinn. :D

En já, ég hef ekkert meira að segja núna.

No comments: