Það er alveg ótrúlegt hversu mikið hlutirnir geta farið úrskeiðis. Jafnvel þegar að það ert þú sem hefur gert allt.
Eftir að hafa eytt einhverjum þrem mánuðum í að vinna í portfoliomöppunni minni og jafnvel enn meiri tíma í hugmyndavinnu og uppbyggingu á henni. Eftir að nákvæmlega ALLT sem gæti nokkruntíma klúðrast eða tekið óendanlegan tíma hefur klúðrast eða tekið óendanlegan tíma. Eftir að ég hef verið að fara gersamlega á taugum af áhyggjum og kvíða yfir því hvort ég nái að klára í tæka tíð fyrir skólann.
Eftir allt þetta sendi ég AAU stolt möppuna mína eftir að hafa fengið afbragðs einkunn fyrir hana í Borgó. Svo fæ ég póst. AAU tekur ekki við neinu öðru en digital portfolio möppun lengur.
Sem þýðir að ég get aðeins sent inn porfolio möppuna í gegnum netið. Ekki einu sinni hægt að skila á DVD.
Sem þýðir að ég get allt eins hent portfolio möppunni minni í ruslið. Hafði ekki einu sinni vit að senda hana bara í Lhí í staðinn fyrir að henda saman annarri crappy og skila henni inn.
Til að bæta gráu ofan á svart get ég ekki einu sinni update-að portfoliosíðuna mína, sem hefði bara tekið nokkra daga að gera flotta. Skólinn er líklega búinn að loka á aðganginn minn.
Hvað get ég núna gert? Keypt mér nýjan rándýrann vef? Kann ekkert að setja það upp hvort eð er. Sent möppuna í Adobe file? Hvað með kvikmyndina og teiknimyndirnar mínar? Þær sjást þá ekkert.
Akkurat núna langar mig bara að sitja og hlæja móðursjúklega
No comments:
Post a Comment