Jæja, þá er geðveik Verslunarmannahelgi að kvöldi komin... fyrir suma.
Ég sjálf átti frekar venjulega helgi þar sem ég vann og bætti upp mikið svefnleysi síðustu viku. Ekki mikið að frétta þar. Hafði ekki einu sinni orku til að fara á djammið á afmælinu mínu.
Fór samt austur í bústað í risagrillveislu núna í gær. Fullt af ættingjum þar og við heilgrilluðum lamb. 18 manns í mat og við náðum samt ekki að klára það. Ég nennti ekki að gista þarna svo að ég keyrði í bæinn um hálf tvö í nótt. Mjög skemmtilegt ferð. Næstum enginn á veginum og ég gat spilað tónlistina mína eins hátt og ég vildi.
Allavega, núna þegar ég er búin í sumarvinnunni þarf ég að fara að skipuleggja næstu 20. daga áður en ég fer út. Mikið að gera og svo stuttur tími....
Er enn í veseni með skólann. Núna þegar þau hafa loksins fengið portfolio möppuna mína er allt að gerast til að ég fái ekki I-20 visað mitt. Þarf að redda því sem fyrst.
Þarf að drífa í því að setja bílinn á sölu. Fer með hann í þvott á morgun, tek myndir og sendi á mbl.is er að spá í að byrja verðið á 170þús.
Þarf að pakka niður herberginu mínu. Mamma og pabbi þurfa að ráðast í rosalegar lagfæringar á þeim hluta húsins og ég neita að leyfa öðrum að fara í gegnum dótið mitt.
Þarf að klára að mála myndina handa Lindu. Hún er næstum því búin en á bara eftir að gera smá lagfæringar.
Þetta eru aðalatriðin hjá mér í ágúst. Já, það og að virkilega flytja út (ef ég fæ einhverntíma visað mitt)
Stay tuned!

No comments:
Post a Comment