Þar síðasta helgi var frí á mánudag vegna Labor Day. Í því tilefni fórum við nokkur á ströndina um kvöldið að kveikja varðeld. Það er víst megin ástæðan fyrir því að fólk fer á ströndina í SF, sjórinn er yfirleitt of kaldur til að synda í.
Þetta átti að vera eitthvað rosalega fjölmennur varðeldur því Chelsea er einn af stofnendum skólaútvarps klúbbs og bauð fullt af fólki til að hitta okkur. En þetta klúðraðist dáldið því að við keyptum ekki nógu mikið af eldivið til að endast einu sinni í klukkutíma, áður en afgangurinn af hópnum átti að mæta.
Þar sem við vorum öll staurblönk og höfðum eytt síðustu krónunum í bjór ákváðum við að reyna að sníkja smá pláss hjá öðrum hópum þarna. Auðvitað þurftum við að lenda á eina hópnum sem var ekki að drekka og þurftum við því að fela afganginn af bjórnum til að mega vera hjá þeim. Þau voru samt mjög skemmtileg, einhver KFUM/KFUK hópur.
Daginn eftir fór skólinn svo á listahátíð í bæ rétt fyrir utan SF. Skólinn leigði ferju bara fyrir okkur (einkaskóli baby!). Það var mjög gaman, falleg list og meira að segja rokktónleikar með fullt af gömlum töffurum. Chelsea sagðist hafa fundið mikla marjúna lykt en einhvernvegin grunar mig að það hafi frekar gömlu hipparnir en unga fólkið sem reykti það þarna. Sá um níræða konu í hjólastól í algjörum fíling rétt við stóra sviðið.
Veðrið hérna er enn að koma mér að óvart. Er búin að nöldra talsvert yfir hitanum hérna, sérstaklega þegar ég þarf að labba langar vegalengdir í matvörubúðir.
Samt sem áður var ég mjög spennt að fara í afmælisveislu hjá dóttur einnar vinkonu minnar hérna. Hún, mamman, heitir Helga og er búin að búa hérna í meira en 15. ár. Mamma kynntist henni í gegnum vinnufélaga og er Helga búin að vera voðalega vinaleg við mig síðan ég flutti hingað og auðvitað Lexi konan hennar líka. Sóla, 4. ára dóttir þeirra, er líka búin að vera að biðja um að hitta mig nokkuð oft.
Mér var boðið um seinustu helgi í afmælið hennar Sólu sem átti að vera haldið við eitthvað vatn í Berkley Hills. Ég var orðin nokkuð spennt því að spáin var góð og ég ætlaði að nota tækifærið og jafna aðeins brúnkuna mína. Kl. 8 á laugardaginn staulast ég inn á baðherbergi og set á mig sólarolíu. Um leið og ég er búin að gera mig klára heyri ég "KABÚMM". Það voru komnar þrumur og eldingar (ein eldingin lenti í blómapotti skammt frá húsinu mínu og setti nokkrar bílaþjófavarnir af stað). Týpískt.
En afmælið heppnaðist samt vel þó að það hafi verið haldið heima hjá Helgu, Lexi og Sólu. Ég gaf Sólu mynd af hafmey sem hún gat litað sjálf og hún varð ekkert smá ánægð með hana.
Fyrir utan þetta er ekki mikið að frétta. Skólinn gengur ágætlega þó að ég er í voðalegum byrjendatímum. Bæði gott og slæmt. Gott því að mig vantar aðeins upp á orðaforðann á sumum sviðum og slæmt því að ég er nokkurnvegin að endurtaka tímana mína í Borgó.
Hef samt á tilfinningunni að það munu breytast því að t.d. í teiknitímanum mínum fékk ég þá heimavinnu á mánudaginn að teikna sívalinga og kassa, sirka 4 af hverju. Núna í gær fékk ég það verkefni að teikna kúlu/egg. Önnin var hálfnuð í Borgó áður en við fórum að teikna egg.
Teiknikennarinn minn er algjört krútt. Varð voðalega spenntur þegar hann frétti að ég væri frá Íslandi (frekar algeng viðbrögð reyndar) og sagði mér að hann hefði einu sinni millilent þar á leið til Frakklands og keypt sér einn bol. Hann var í þeim bol í síðasta tíma bara fyrir mig :)
Hann er að notast við minnisaðferð til að muna nöfnin okkar og alltaf þegar hann kallar á mig er það "Sandra, you're from Iceland".
Svo, þegar hann fór yfir heimavinnuna mína gagnrýndi hann hana en sagði svo "...but it's well done... GO ICELAND" Hehehe
Eileen, Chelsea, ég og Leslie á listahátíðinni. Sasha tók myndina
No comments:
Post a Comment