Ok, þá er maður kominn aftur út og byrjaður á önn nr. 2.
Er búin að fara í tvo tíma. Figure drawing (módelteikning) og einhvern enskutíma sem ég er ekki svo viss um. Fer svo í figure modeling (móta módel úr leir) og history of animation (saga teiknimyndagerðar) seinna í vikunni. Veit að modeling verður krefjandi fyrir mig, hef aldrei þurft að gera neitt svona í leir áður. History of animation er basicly bara að horfa á teiknimyndir og skrifa um þær. Hef tekið svoleiðis tíma áður.
Er líka komin á nýja tölvu. MacBook Pro 15tommu. Spá í að kalla hann Melvin en held að það sé hægt að finna betra nafn. Líka komin aftur á Skype.
Hef líka teiknað meira af myndum af mér og Chelsea til að hengja á hurðina hjá okkur. Nýju nafnspjöldin eru vandræðalega ljót þannig að ég varð bara að gera eitthvað í því.
Hér erum við.

Man ekki meira í bili.
1 comment:
ekkert að frétt hérna ?
Post a Comment