Yeeee. Það virkaði

Ok, þá er að prófa hvort ég geti haft myndband
Ég hefði viljað setja inn eitthvað af youtube en jæja...
Allavega. Eins og ég sagði þá er þetta enn eitt bloggið sem ég er byrjuð með en ég held að ég sé loksins búin að finna það sem hentar mér best. Nú þarf ég bara að reyna að vera virk með að segja frá lífi mínu.
En ég er samt að pæla... það er eins og þeir sem eru ekki með blogg séu þeir sem hafa mest af lífi. Bara pæling. Ég ætla auðvitað að hafa bæði.
En þar sem ég hef ákveðið að reyna eftir mesta megni að komast í the Academy of Arts University ætla ég að reyna að spara í vetur. Planið er að fara eins lítið og hægt er á djammið í vetur eða just for special friends ;)
Líka, ég ætla að reyna að draga saman kostnað á nammi og nesti. Smyrja samlokur og hætta að hafa viðskipti við okurbúlluna í skólanum. Svo verða líka engin fatakaup nema ég sé í útlöndum eða kannski fyrir jól. Ég get ekki hugsað mér að losa mig við bílinn en maður reynir kannski að minnka notin. Svo er að finna eitthvað fyrir mann að gera sem kostar lítinn pening.
En ég er samt að pæla í að kaupa mér kort í Borgarleikhúsið. Ég sé eftir því að hafa ekki verið virkari í leikhúsunum og eytt frekar pening í bíó þegar ég leigi myndir frítt. Svo er líka námsmannaafsláttur þannig að þetta ætti ekki að vera svo dýrt.
Talandi um leikhús. Ég og fleiri fórum á Fló á Skinni um helgina. Hrikalega gott leikrit. Það er þessi leikari, Guðjón Karl eitthvaðson (Gói). Hann var að leika tvo gaura sem litu nákvæmlega eins út og þetta er svona ruglingur með það hvor er hvað þannig að hann þurfti að skipta um föt á methraða. It's just insane. Mig langar eiginlega að sjá það aftur :)
En ég held að ég stefni á það að fara á Fólkið í Blokkinni. Gói er að leika í því líka þannig að... ;)
Skólinn gengur ágætlega. Slatti af verkefnum en þetta gengur samt mjög vel þannig að ég hef ágætlega mikið af frítíma. Það gæti orðið mikið stress fyrstu tvær vikurnar í október því að ég þarf þá að skila inn ýmsum verkefnum og fara í eitt próf en svo er ég flogin til Köben með Guðrúnu.
Við erum að fara um morgunin á fimmtudaginn 9. okt. og verðum fram á sunnudag. Ekki alveg ákveðið hvað á að gera en...
Hahaha, Guðrún var akkurat að hringja að segja mér að hún hafi bókað herbergi handa okkur. Þvílík tilviljun.
Jæja, nóg komið núna. Ég ætla að reyna að láta þetta blogg virka, skal.
Sjáumst seinna. Sandra
No comments:
Post a Comment