Wednesday, September 24, 2008

Í sama form

Þjóðhátíð var geðveik. Ég er strax farin að plana að fara þangað aftur næsta sumar. :)

Ohhhh, nú er sumarið liðið. Tími til að kveikja aftur á heilanum og skella sér í skólann... eða halda áfram að vinna eins og ekkert hafi breyst. Hvort heldur sem á betur við ykkur.

Ég er reyndar pínu ánægð að reyna á heilafrumurnar aftur. Það er gaman að fá góðar einkunnir og læra eitthvað sem maður hefur áhuga á. Ég er held ég bara í svoleiðis tímum núna. Fyrir utan íslensku 503, ég er ekki alveg að meika hana. Kennarinn ákvað að við skyldum byrja á því erfiðasta það er málfræðisögu og ljóðum. Við tökum svo lokaprófið í því í október eða eitthvað og erum svo bara að dunda okkur við að lesa Sjálfstætt Fólk og smásögur fram að jólum. Sem mér finnst gott plan, ef ég gæti bara skilið það sem við erum að læra um.

Ég átti að svara spurningum, í hefti, um lausmálshöfunda, hverjir þeir voru og hvaða stefnu þeir höfðu. En til þess að geta svarað þessum spurningum væri gaman ef einhver hefði fyrir því að útskýra hvað í fjandnum lausmálshöfundar eru. Ég játa að ég las bókina ekki af fullri einbeittni en það virðist ekki standa ein einasta útskýring á þessu orði í bókinni.

Gaman að byrja veturinn á því að fá móðursýkistkast yfir nokkrum íslenskuspurningum.En ef þið hafið ekki rekist á mig síðan á fimmtudag þá er auglýsingin mín loks að detta í hús. Bíóhús sko (see what I did there). Til að dusta af minninu ykkar þá er hér smá upprifjun:
Við í grafískum kúrs á síðustu önn tökum öll þátt í auglýsingasamkeppni fyrir Flott án fíknar (unglingar án áfengis/vímuefna). Auglýsingin var ætluð til að sýna í bíóhúsum meðan beðið var eftir myndinni (skjáauglýsing, ekki hreyfi). Ég lenti í öðru sæti. :)

Við í þremur eftstu sætunum erum því að fá auglýsingarnar okkar birtar núna í byrjun september. Mín auglýsing verður sýnd á þriðjudögum og föstudögum.Þannig að, ef þið ætlið í bíó leitið þá eftir teiknaðri (og litaðri) mynd af nokkrum krökkum í sófa. Það er mín mynd. Og ef þið heyrið hátt píkuskræk, það mun vera ég.
Síðasta mál sem ég ætla að fara yfir áður en ég fer aftur að horfa á Gossip Girl þættina (dýrkun) er að ég er ekki sátt með þessa síðu. Það virðist ekkert fútt í þessu nema maður borgi notendagjald og ef ég á að borga fyrir síðu vil ég þá frekar stofna mína eigin og setja hana upp sjálf.
En þar sem ég er lítil nánös þá flyst ég líklega bara á gamla bloggið aftur. Ef ég man lykilorðið...ég læt ykkur vita hvert ég fer.

Nema einhver sé til í að splæsa á mig léninu krumla.com?

No comments: