Wednesday, September 24, 2008

Reynum aftur

Ok, enn er maður að byrja með bloggsíðu. Vonandi endist þessi lengur en hinar.

Ástæðan fyrir því að ég er að reyna að byrja að blogga aftur er að nú er það alveg pottþétt að til þess að ég geti lært það sem mig langar að leggja fyrir mig verð ég að flytja út. Þess vegna vil ég halda uppi bloggi svo að þegar ég flyt út getur fólk fylgst með mér.

Núna er öðru árinu mínu í Borgó lokið. Eitt ár enn og ég útskrifast loksins með stúdentspróf af listnámsbraut. Þetta er farið að verða óþolandi langur tími en ég er hamingjusöm á þeirri braut sem ég er á núna og það er allt sem skiptir máli.Það að ég hafi verið eitt sinn í Versló er eins og fjarlæg minning. Núna eru þetta bara aukaeiningar fyrir mér.En ok. Aftur í nútímann.

Skólanum var að ljúka og ég stóð mig vel í öllu nema stærfræði.
Mig minnir að það hafi verið:
Kvikmyndun: 8
Samtímamenning: 7
Hljóðsetning: 9 (kom mér mjög á óvart)
Grafísk hönnun: 9
Teiknimyndagerð: 10

Ég fann mig alveg í teiknimyndagerð. Það var ekkert smá gaman að leika sér í Flash og mig langar rosalega að læra á fleiri forrit og fleiri aðferðir til að gera teiknimyndir.
Ég ætlaði upprunalega að skila inn stop-motion mynd (þegar maður lætur brúður/hluti hreyfast með því að taka fullt af myndum af þeim og láta þau svo hreyfast ofurlítið á milli mynda) sem lokaverkefni. En þegar ég hafði loksins klárað að gera brúðurnar voru bara tvær vikur þar til við áttum eftir að skila inn verkefninu þannig að ég teiknaði (ath. ÉG, eintala) og setti allt upp í Flash á þeim tíma og náði meira að segja að hljóðsetja. Er ég stolt af sjálfri mér? Ó JÁ!

Hérna er myndin fyrir áhugasama: http://www.youtube.com/watch?v=0r0SroMK7pQ

Kennaranum mínum finnst að ég bara verði að leggja teiknimyndagerð fyrir mig. Sem ég er virkilega að pæla í. Ég ætla að læra grafíska hönnun en núna langar mig frekar að læra Illustration sem er meira teiknun, minna leikur með texta.
Þannig að ég er núna að leita mér að skóla sem er með bæði góða teiknimyndabraut og Illustration braut.
Samkvæmt kennaranum mínum væri best fyrir mig að fara til Bandaríkjana/Kanada og læra þar. Sem gæti verið gaman. Ég hef nú þegar fundið alveg hrikalega flottan skóla. Þar er frábær aðstaða, flott húsnæði og námið þar myndi áreiðanlega opna margar dyr fyrir mér.

Eina vandamálið er að skólinn er í San Francisco og árið kostar um 2. miljónir og þá er ég ekki að tala um það sem fer í mat eða húsnæði. Ég væri þarna í 3 - 4. ár þannig að skuldir mínar að loknum skóla væru um 6 eða 8 milljónir króna.

Þannig að nema ég vinni einn fjórfaldan í lottó þá er ég ekki að fara þangað. Plús það að ég veit ekki hvort ég gæti meikað einangrunina sem kemur með því að búa hinum megin á hnettinum.
Þannig að núna ætla ég að reyna að finna mér góðan skóla í London. Held að ég gæti orðið mjög hamingjusöm að búa í London og það er ekki endilega í hvaða skóla þú menntar þig, það er hvað þú gerir við menntun þína.
Aaaahhhh London. Það er bloggfærsla alveg útaf fyrir sig. En klukkan er orðin margt og þessi færsla jafnast nú þegar á við heila ritgerð.

Góða nótt allir!

No comments: