Wednesday, September 24, 2008

Sunnudags blús

Ok, sunnudagur.
Ég er farin að sofa ótæpilega mikið. Það að sofa í næstum samfelda 12. tíma er að verða normið hjá mér. Ekki eðlilegt.Vaknaði aðeins klukkan 9. í morgun og fann lykt af vöfflum :S Fór aftur að sofa og dreymdi að ég væri með sturtu í miðju herberginu mínu.
Kannski stafar það að mér er farið að leiðast pínu núna þegar skólinn er búinn. Ég er ekki lengur vön því að hafa svona mikinn frítíma. Er að pæla í að biðja um að vinna alla laugardaga (í staðinn fyrir annan hvern) bara svo að ég hafi eitthvað að gera um helgar. Ég á eftir að verða svo mikill vinnualki í framtíðinni ;).
Verst að hún Guðrún er nú þegar orðin vinnualki þannig að það verður erfitt að hafa eitthvað samband við hana í sumar. Við höfum ætlað að hittast og gera eitthvað í tvær vikur en alltaf verið of uppgefnar í lok dagsins til að nenna því.
Ég ætlaði samt að vera virk núna í sumar við mín eigin verkefni. Ég skissa rosalega mikið en ég held að ég hafi aldrei virkilega klárað myndirnar mínar og litað þær.
Svo er ég með eina hugmynd af teiknimynd sem mig langar rosalega að gera að raunveruleika. Er búin að skrifa handritið en á eftir persónusköpunina (hvernig karakterarnir eiga eftir að lýta út) áður en ég fer að gera bakgrunna og svo sjálfa myndina.
Nú er bara að koma sér að verki og hætta að hanga bara á netinu eftir vinnu ;)
Og eins og ég nefndi í fyrri bloggfærslu þarf ég líka að nota sumarið í leit að skóla.
Ef einhver þarna úti sem les bloggið mitt (sem er frekar ólíklegt þar sem þetta er svo nýtt) má hann/hún endilega deila með mér ef þau vita um einhverja góða skóla í London. Eða einhverstaðar annarstaðar þess vegna.

Ég er nefnilega ekki nógu mikið inni í þessu. Þekki engan í þessum bransa nema kennarana mína og þar sem það er komið sumar verður dáldið erfitt að hitta á þá á göngunum ;)

En ok, tími til að gera eitthvað af viti (í fyrsta skipti ;)). Þarf að velja hvaða föt ég ætla að taka með mér til Svíðþjóðar/Englands. Sú ferð byrjar á miðvikudaginn og stendur í viku nema að ég neiti að koma heim frá London. Get ekki beðið eftir að fá mér kínverskan og Starbucks og fara að versla og... og....Svíðþjóð verður örugglega líka fín. ;)

No comments: