Ok, margt búið að gerast núna. Sumt sem hægt er að skrifa niður í almenna dagbók og annað ekki.
Ég var að lesa í Cosmo núna í dag að fólk er virkilega að auglýsa hvenær og hve lengi þau eru í sumarfríi. Það er í burtu frá húsinu sínu og meira að segja með heimilisfangið sitt á síðunni. Hversu heimskur getur maður verið? Gætu allt eins skrifa á vefsíðuna "Er með fullt af dýrum hlutum sem ég þarf að losna við, bý á Sogavegi 23, verð í burtu 2-10. ágúst, allir velkomnir".
Allavega, ég fór til Svíðþjóðar núna í byrjun Júní. Suddalega gott veður og mjög gaman að ferðast um Stokkhólm. Flugum svo með Ryanair til Englands.
Orðið pínu skrítið að Dagmar skuli ekki lengur vinna í miðri London þannig að það að fara að versla varð pínu vesen. Mér fannst ég ekki fá nógu góðan tíma í minni heitt elskuðu TopShop á Oxford Street og maður fór ekkert í H&M á Knightsbridge (sem að mínu mati er flottasta H&M búð sem ég hef farið í). Ég er að pæla í að skutlast þangað aftur rétt áður en skólinn byrjar í ágúst.
Langar að gera eitthvað virkilega skemmtilegt áður en ég fer aftur í skólann og það lýtur ekki út fyrir að ég sé að fara á Þjóðhátíð með Guðrúnu eins og við vildum þar sem við erum báðar það uppteknar (aðalega ég) í vinnunni þannig að við gætum ekki lagt af stað fyrr en á laugardag og komið aftur á mánudag. Alltof stuttur tími. Þannig að við ætlum kannski að finna okkur eitthvað annað að gera. Endilega komið með hugmyndir.
Fór líka á David Guetta tónleikana með Steinu. Hrikalega gaman það var. Maður var endalaust að rekast á einhvern sem maður þekkti og í eftirpartýinu náðum við okkur báðar í gaur. Ekki sami gaurinn auðvitað ;)
Fór á Kung Fu Panda á föstudaginn. Vá, hvað hún var geðveik! Ekki bara æðislega fyndin heldur voru gæðin alveg rosalega flott. Myndin byrjaði í 2D teiknimynd og ég horfði á hana heilluð. Rythminn og hversu vel hún flæddi og layerarnir........ aaaaahhhhhh. Ég er svo mikill lúði.
Annars er líf mitt utan vinnu frekar rólegt. Reyndar er líf mitt í vinnunni búið að vera frekar spennandi. Það var einn gaur sem ég hélt virkilega að ætlaði að lemja mig því að ég tók frá honum kortið hans (vákort, verð að taka það samkvæmt lögum). Einhver gömul fyllibyttu kona ætlaði að klappa mér á handlegginn en var ekki að einbeita sér og klappaði mér á annað brjóstið í staðinn.
Krakkarnir sem ég vinn með eru líka svo skemmtileg. Það er svo gaman að spjalla við þau og við erum öll svo ólík.
Svo er pressað á mann að mæta með eitthvað í vinnuna á afmælinu sínu. Ég var að pæla í að baka Gulrótarköku og kannski Krásuköku fyrir afmælið mitt núna 31. Er samt ekki viss hvort ég vilji svo halda upp á afmælið eitthvað frekar. Ég nenni valla að hafa partý og ég veit líka aldrei hverjum á að bjóða nema fólki í vinnunni. Æi allavega ég er farin að rausa.
Góða nótt,
Krumlus
No comments:
Post a Comment