Ok, vitið þið hvað fer virkilega í taugarnar á mér?
Það að háskólanemar eru taldir æðri en menntaskólanemar. Ég fékk póst núna áðan frá group sem ég er í á facebook sem heitir Betri kjör fyrir námsmenn þar sem stóð að það væri frír bjór á Hverfisbarnum í kvöld fyrir þá með háskólaskírteini. Fyndið, þegar ég skráði mig í þennan hóp hélt ég að það væri fyrir námsmenn, ekki háskólanema.
Ég geri mér grein fyrir því að flestir í menntaskóla eru 16-20. ára. Ég geri mér líka grein fyrir því að flestir sem eru í menntaskóla búa enn hjá foreldrum. Flestir, ekki allir.
Ok, ég bý enn í foreldrahúsum því að ég hef ekki kærasta/leigufélaga til að búa með eða nóga peninga til að leigja mína eigin íbúð. Ef svo væri hefði ég flutt út þegar ég var 16.
En margir háskólanemar eru samt enn að búa heima hjá sér. Þau fá afslætti og fríðindi.
Síðan Hraðbraut var stofnað hafa nemendur haft tækifæri á að útskrifast allt að 18. ára gamlir. Er tékkað á skílríkjum þegar sýnd eru háskólaskírteini?
Ein vinkona mín í Borgó er 23. Hún býr með kærastanum og dóttur sinni í þeirra eigin íbúð. Hún getur ekki tekið margar einingar í einu útaf því að hún þarf að geta séð um dóttur sína. Það er ástæðan fyrir því að hún er enn í skóla, ekki vegna þess að hún nennir bara ekki að læra.
Svo var mikil hætta á að kærastinn hennar myndi missa vinnuna og þar sem hann er eina tekjulindin á heimili þeirra hefði það getað komið þeim í stóran vanda. Hún getur ekki fengið styrk vegna þess að hún er í menntaskóla. Þau myndu fá styrk ef kærastinn færi í háskóla.
Þetta er svo mikið óréttlæti. Afhverju er komið fram við menntaskólanema eins og við eigum ekki aukin fríðindi skilin? Erum við ekki jafn fín og aumingja, fátæku snillingarnir sem fara í háskóla? Nú þegar kreppan er skollin á munu margir skrá sig í háskóla til að getað komist í ódýrar íbúðir og aukin fríðindi í stað þess að vera á atvinnuleysisbótum.
Og hvað með Þjóðarbókhlöðuna? Ég veit ekki um betra dæmi um stéttarskiptingu nema en þar. Æðstir eru þeir í framhaldsnámi eða doktorsnámi. Þeir fá sér lestraraðstöðu og aukinn aðgang af upplýsingum og ritum. Næstir eru undergrad eða aðrir háskólanemar. Háskólanemar fá forgang að lestraraðstöðum á próftímum. Þar sem ekki er nógu mikið af borðum bara fyrir háskólanemar er ekki séns fyrir lágkúrulegan menntaskólaskítinn að fá að komast þar að. Kannski ef maður er tilbúinn að sitja á gólfinu.
Ekki segja að ég geti bara lært í mínum eigin skóla. Lesaðstaðan í Borgó er kannski nóg fyrir 40 nemendur. Það er meira pláss í Verzló en þá þarftu að mæta kl. 7 um morguninn.
Afsakið mig, ég ætla að snúa mér aftur að mínum lítilsverðu heimaverkefnum.
No comments:
Post a Comment