Tuesday, October 28, 2008

Danmörk

Jæja, nú er mér aftur farið að leiðast það mikið að nenna að blogga.

Köben var skemmtileg. Ég verslaði ekki alveg jafn mikið og ég ætlaði en það er kannski fyrir bestu þar sem gengið var og er 20 kr.
Ég og Guðrún vorum á hóteli rétt hjá aðallestastöðinni og þurftum bara að labba kannski um kílómeter til að komast á Strikið. Þar hengum við dáldið mikið. Skoðuðum ljósmyndasýningu, fundum örugglega versta pizzastað í Danmörku, horfðum á götulistamenn og ég varð ástfangin af pönnukökunum á einu kaffihúsinu.

Stefnan var að fara á djammið en eftir að hafa gengið allan daginn höfðum við ekki nóga orku til að fara af herberginu nema einu sinni þegar við löbbuðum fram og aftur um hverfið í leit að ákveðnum veitingastað.
Skruppum samt einu sinni í Tívólíið. Þeir voru þá akkurat að opna fyrir Halloween og það var allt skreytt með graskerum og nokkrar brjóststórar nornir sýndu töfrabrögð.

Við kíktum líka í bíó. Ég sannfærði Guðrúnu að sjá WallE með mér. Ég held að WallE sé orðin ein af mínum uppáhalds myndum. Ég verð að kaupa hana þegar hún kemur út.
Held samt að hún slái ekki út KungFu Panda. Ég veit ekki hversu oft ég hef horft á hana og enn ekki komin með leið.

Einn götulistamaðurinn sem við horfðum á var frekar áhugaverður. En ég er kannski hlutdræg vegna þess að ég var svo "heppin" að vera valin að hjálpa honum. Ég og Guðrún mættum frekar snemma, þegar hann var enn bara rétt að byrja og það var ekki mikið að fólki komið. Þá spurði hann okkur hvaðan við værum, við svöruðum. Þegar lengra var liðið á sýninguna benti hann svo á mig og sagði "What's your name?" Ég sagði "Sandra" því að ég heiti það. Þá sagði hann "Come with me Sandra... I can hear from your accent that you are from Iceland". Vá, rosalega er hann klár. Hann var samt mjög skemmtilegur. Ég var sett í full djobb að aðstoða hann ásamt einhverjum Svíja og litlum strák frá Danmörk. Ég hef aldrei verið valin í eitthvað svona áður þannig að þetta var ágætt.

Núna er ég nýkomin úr matarhléi þar sem forsetinn var að halda fyrirlestur. Þetta er víst eitthvað átak hjá honum að mæta í skóla á landinu og tala um mennt er máttur og svona. Þetta var frekar upplýsandi. Gaman á sjá að forsetinn sé ekki algjörlega glær.

En nú verð ég að fara. Er að kynna tímarit sem ég var að hanna.

No comments: