Ég ætla bara rétt að renna yfir liðna og komandi atburði. Ekki vegna þess að ég held að það sé fólk þarna úti sem les þetta blogg heldur vegna þess að ef ég fer ekki að skrifa þessa hluti niður gleymi ég þeim.
Ég er að fara að hitta Ylfu á Hressó kl. 9 til að renna yfir þær myndir sem ég hef klárað fyrir barnabókina. Jamm, ég er 50% hluthafi í barnabók.
Dagmar réð mig til þess að hanna logo, bækling og boðskort fyrir sýninguna hennar í Newcastle. Ég er búin með logoið en þarf að reyna að gera bæklinginn á morgun.
Frábært að ég sé að fá svona mikla vinnu þó að ég sé ekki einu sinni útskrifuð úr Borgó ennþá.
Vinkonur mínar í skólanum voru líka að pæla í að ráða mig til sín til að klára skjámiðlagrafíkverkin þeirra fyrst að ég er sama og búin með mitt tveim vikum á undan áætlun. :)
Ég er ekki að standa mig jafn vel í að lesa Sjálfstætt fólk og ég ætlaði mér. En við erum samt að lesa þessa bók á fáránlegum hraða. Held að þetta sé ekki meira en mánuður sem við erum að taka í þetta auk verkefnaheftis.
Auk þess á ég að vera að lesa sirka 4. kafla í the Golden Compass á viku fyrir Ensku.
Önnur erfið verkefni eru t.d. hugtakið að tala. Ég á að skrifa sirka 10. bls. ritgerð um það fyrir MHS304 frá ýmsum fræðilegum sjónarhornum og skila inn sem fyrst.
Ég á svo að gera myndband um þetta hugtak og er að brainstorma. Kannski ég ætti að fá einhverja leikara? En ég hefði náttúrulega gott af því að animatea þetta.
Svo má ekki gleyma að ég er að gera kynningu um Cockney fyrir Ensku á mánudag. Hef reyndar mjög gaman af því en það er afar tímafrekt.
Svo á ég að vera búin að gera plakat fyrir MHL304 á þriðjudag og mér dettur ekkert í hug. Ekki oft sem það gerist, kannski er það vegna þess að það er svo margt sem mig langar að gera en veit ekki hvernig ég á að gera það.
Flott án fíknar myndin mín hefur verið sett á "póstkort". Ég ber ekki ábyrgð á neinu nema myndinni. Ef þið rekist á þetta á ég myndina af öllum krökkunum.
No comments:
Post a Comment