Svo, ég fór á djammið núna í gær og ég verð að segja, þetta var eitt af mínum uppáhalds djammferðum.
Ok, svo þetta byrjaði allt í nýju íbúðinni þeirra Steinu og Hönnu þar sem við fáum okkur aðeins að drekka og tölum saman. Ég hafði aldrei hitt Hönnu áður svo að það var allt þetta bond thing og svona. Þar fékk ég líka pakka af ginsen tyggjó sem var það sem hélt mér vakandi (og pínu hæper) allt kvöldið.
Eftir það er haldið í partý hjá vinum hennar Hönnu. Þetta var þannig séð ekkert spes vegna þess að maður þekkti engan og það var mikið verið að tala um fólk sem maður þekkti enn síður. Samt áhugavert að segja að herra Norðurland var þarna, hefði verið afar mikið egóbúst að næla sér í hann. En Steina nennti voðalega lítið að hanga þarna svo að ég og hún fórum í bæinn (Hanna vildi ekki koma). Þá var haldið á Dillon og djammað þangað til þeir lokuðu. Elska tónlistina þar. Þar sem ég vildi ekki dansa strax við Steinu og Helgu (sem var þarna líka á tímabili) fór ég bara að kjafta við gaur sem heitir Ási og var í MH. Hann þurfti því miður að fara að leita uppi ölvaðan vin sinn.
Þar var líka fullt af þjóðverjum sem voru að fá rosalega athygli frá stelpunum. Ég sá einn sem mér fannst ekkert smá sætur og var að reyna að ná athygli hans allt kvöldið. Dansaði eitthvað við hann og talaði við hann en hann fór að lokuð burt með einhverri stelpu. Bömmer.
Mér fannst samt verst að ekki-alveg-jafn-sætur bróðir hans fannst ég æðislega heit. Hann fór með mig eitthvað fyrir utan staðinn og ætlaði að kyssa mig en ég neitaði. Ég vildi frekar bróður hans og vildi ekki eyðileggja þann möguleika. Gaurinn varð svo sár, mér fannst það svo leiðinlegt en eftir það kom hann ekkert aftur inná Dillon sem var kannski aðeins of mikið drama.
Eftir það hitti ég Steinu á barnum þar sem hún var að tala við einhvern gaur sem ég hélt að hún væri að hözzla. Svo er hann eitthvað að reyna að ná athyli minni og við endum í grettukeppni. Svo fer Steina og ég er að smsast við Yngva vin minn sem ég (á einhverju flippi) var að reyna að koma saman við Steinu. Kemur þá grettugaurinn til mín og þá kom í ljós að hann hefur frekar áhuga á mér en Steinu. Ha?
En eftir þetta lokar Dillon og Steina fer heim með einum þjóðverjanum og skilur mig bara eftir. Gaurinn eltir mig þegar ég stefni á Celtic að leita að Hönnu. Hann var frekar sætur en ekki alveg mín týpa. Ég var voðalega picky þetta kvöldið.
Kom svo í ljós að Hanna var enn í partýinu svo að ég hringi í Sigga. Hugsa með mér "vá, það hlýtur að verða fjör að djamma með honum". Þegar ég er að bíða eftir honum hjá Ponto eða Porto eða hvað þetta heitir fer ég rosalega að spjalla við einn gaur sem er að éta pizzu þarna fyrir utan. Við vorum alveg þvílíkt að spjalla þegar Siggi kom svo að ég held að hann hafi haldið að við værum rosalegir vinir. Ég hefði nú ekkert á móti að vera vinkona þessa gaurs (Eysteinn minnir mig að hann hafi heitið) voða sætur og skemmtilegur.
En allavega, þegar Siggi er loks mættur þá segir hann mér að hann þurfi að hlaupa heim til sín að ná í vini sína og geti ekki djammað með mér. Þá datt mér í hug að leita uppi Yngva, hann var þá á Celtic svo að ég rölti þangað bara ein í góðum fíling. Eysteinn hafði farið að leita uppi sína vini.
Á leiðinni hitti ég þennan rosalega töff hóp af MRingum sem tóku það afar nærri sér að sjá mig bara eina. Það var gaman að tala við þau, þeim fannst ég allavega mjög flott, hehe.
Sögðu að ég væri það falleg að gaurinn sem hafnaði mér (leyndó hver það er en vinir mínir vita það) væri með hafragraut í stað heila. Rosalegt egó búst :)
Svo hitti ég Yngva og vini hans á Celtic. Allir alveg rosalega fínir í jakkafötum nýkomnir úr afmæli. Vildi að ég hefði getað kynnt hann fyrir Steinu. Hún hefði ekki getað staðist hann svona fínan. Ég hékk með þeim þar sem eftir var kvöldsins eða til 5. Þá fórum við öll heim.
Það hefur tekið mig svona klst. að reyna að sofna því að ginsen tyggjóið var enn að virka.
En já, mjög skemmtilegt kvöld. Afar sátt við alla þessa athylgi frá strákunum.
P.S. Ég fór líka á djammið um seinustu helgi með Lindu, Kiddu og Ófa en það er önnur saga sem ég þarf að nefna seinna.
No comments:
Post a Comment