Ég fór í dag og skráði mig í tíma fyrir næstu önn. Þeir virka mun meira spennandi en þeir sem ég er í núna. Ég þoli ekki Storyboarding t.d. hann er dýr og erfiður og mér finnst ég ekki vera að læra neitt gagnlegt í honum. Computer Graphics for Animation er líka mjög svefndrukkinn tími en það er meira stofunni að kenna. Þar er ég allavega að læra réttu ensku hugtökin þó að ég viti mest allt sem ég er að læra fyrirfram. Fæ allavega góða einkunn í lokinn á þeim tíma.
Allavega, núna á næstu önn fer ég í Figure Drawing (módelteikning), Figure Modeling (bý til líkamsparta úr leir), History of Animation (Teiknimyndasaga) og Written Communication Requirement (Enska).
Komst að því að ég fékk nokkra áfanga metna. Þar á meðal stærðfræði... já, ég trúi því varla heldur.
Ég þarf svo að plana hvenær ég á að taka Color and Design tíma. Ég get í síðasta lagi tekið hann næsta haust en það er betra að taka hann fyrr en seinna. Get tekið hann á sumarönn en ég get líka komið snemma aftur úr jólafríi og tekið hann á þrem vikum áður en vorönn byrjar.
Við stelpurnar vorum samt að tala um það í gær. Ég væri í tíma upp á hvern einasta dag (held líka um helgar) í þrjár vikur frá 9:00 til 14:00. Þetta kostar slatta og spurning hvort ég væri ekki alveg útbrunnin áður en sumarið kemur en á móti gæti ég komið heim í sumar og unnið. Þarf að hugsa betur um þetta.
Langar að vita hvað ykkur finnst.
Btw ég hef heyrt frá nokkrum að þeir geti ekki kommentað á þessa síðu þannig að ég ætla að deila linknum á facebook og þið getið kommentað þar.
No comments:
Post a Comment