Ég náði að laga kommenta dótið. Núna ættu allir að geta sagt það sem þeir vilja og svo velja þeir bara Name/URL eða Anonymous.
Þið sem eruð með athyglisgáfuna í lagi hafið örugglega líka tekið eftir því að ég skrifaði lista hérna við hliðina á blogginu yfir fólk sem ég tala reglulega um. Held að þetta eigi eftir að koma sér vel fyrir alla. Ég get ekkert gert í skortinum á enter, sorry.
Daglegt líf er voðalega rólegt hérna. Við vorum með smá partý hjá Eileen í gær. Það var bara ég, Chelsea, Sasha og Gary sem náðum að mæta. Einn gaur sem heitir Mike kom við í smá stund líka.
Það var gaman, við drukkum bjór og máluðum Chelsea og Sashu með vatnslitum. Fyndið að ég virka eins og atvinnubytta við hliðina á sumum. Eileen var farin að riða til og frá eftir tvo bjóra. Meðan dempi ég í mig 9 - 10 bjórum á einu kvöldi og finn varla á mér. 5 af þeim voru Coronita (Corona í minni flöskum) og afgangurinn var vatn með bjórbragði sem einnig kallast Miller Lite.
Ég er nokkurnvegin algjörlega, smá, harð, næstum því ákveðin í að taka Color and Design áfangann á 3. vikum. Best að ljúka því bara af (og hvað á ég svosem að vera að gera heima allan þennan tíma líka?). Jafnvel þó að það verði erfitt. Þá er ég örugg um að geta verið allt sumarfríið heima í staðinn fyrir að taka sumarskóla og geta kannski ekkert unnið.
Við Sasha og Chelsea erum að plana að leigja saman næsta vetur. Það er svo fokdýrt að leigja hjá skólanum og alltof strangar reglur. En það hefur náttúrulega sína kosti eins og örugg bygging og smá félagslíf.
En það borgar sig mun meira að leigja sjálfur. Sérstaklega ef við fáum íbúð nálægt Sutter byggingunum því þá erum við nálægt kaffiteríunum, strætóstoppustöðvunum og þeirri skólabyggingu sem ég á eftir að eyða sem mestum tíma í.
Plús það, þá er aldrei að vita nema ég geti fengið mér kött :)
4 comments:
Gott fyrir þig að vinna hérna heima í sumar og taka áfangana áður en þú byrjar á næstu önn, það væri sniðugt, þá hefðum við þig hérna heima í sumar !!
Takk fyrir að kommenta hver sem þú ert :)
Róleg ekki ertu að selgja í þig 9-10 bjórum elskan!
kv Birna
Þetta var allt í litlum flöskum og dósum og eins og ég sagði þá er þessi Miller Light álíka áfengismikill og djús.
Post a Comment