Fannst ég þurfa að skrifa aðeins skemmtilegra blogg. Hitt var dáldið leiðinlegt, ekki þetta sama "haha, my life's awesome" eins og venjulega ;)
En það er erfitt að lifa spennandi lífi þegar maður þarf að vinna heimavinnu og hvorki maður sjálfur né vinir manns eiga nokkurntíma pening.
Útvarpsklúbburinn hélt Battle of the Bands núna um síðustu helgi. Það var mjög spennandi og margar góðar hljómsveitir. Fámennt en góðmennt.
Svo erum við Chelsea, Sasha og Eileen að fara á Murder Mystery Night í kvöld. Þetta er víst eins og leikurinn Cluedo nema með alvöru leikurum. Verður örugglega geðveikt gaman, vonandi er ég ekki alveg úr sakamálaæfingu. Hehe
En til þess að ég geti farið með hreina samvisku þarf ég að drífa mig að klára Experimental Animation heimavinnuna mína. Við erum núna að gera klassíska teiknimyndagerð þar sem við tökum myndirnar í gegn um pappírinn. Veit ekki hvernig ég á að útskýra það betur.
Eftir það byrjum við á að gera brúður. Víst mjög flókið ferli þar sem ég þarf að kaupa allskonar skrúfur og hjarir og stuff fyrir beinagrindina.
Allavega, þarf að drífa mig. Reyni að vera duglegri að setja inn myndir í framtíðinni
No comments:
Post a Comment