Svo, ég var búin að ákveða að taka Color and Design á þrem vikum núna í janúar. Ég vissi að ég yrði að vera í tíma á hverjum degi frá 9-14 og þurfa að borga sirka 2.245 dollara aukalega eða 278.380kr.
Í fyrstu fannst mér það ekki mikið mál, fyrir utan kannski peninginn þar sem ég veit ekki hvort að LÍN myndi styrkja mig um hann. En ég gæti hugsanlega fengið gömlu vinnuna í Vínbúðinni aftur í sumar þar sem ég yrði ekki að taka áfangann í sumarskóla. Plús það að ég finnst það sóun að hafa allan janúar lausann og ekkert að gera.
Núna hins vegar komst ég að því að ég yrði rukkuð aukalega fyrir að sofa á dorminu á þessum tíma eða 45$ á nóttina. Ef við segjum að ég verði 23. nætur og gengið helst eins og það er væri það 128.340kr (1.035$). Það er 5.535kr. nóttin!
Eftir þetta bætist svo við efniskostnaðurinn og ég veit að ég á að mála amk. eitt málverk þannig að ég þarf allskonar drasl fyrir það.
Auk þess hef ég fengið þær upplýsingar frá Chelsea (sem fékk það frá vinkonu sinni sem tók áfangann í Intersession) að þetta er víst algjört helvíti. Þú gerir ekkert nema að læra allan þennan tíma þar sem þú þarft að kremja saman heimavinnutímanum. Venjulega þarftu að gefa hverju verkefni 10+ tíma á viku en í interession hefuru aðeins einn dag. Sjáumst seinna svefn.
Þannig að ég ætla að tala við námsráðgjafann minn þegar ég hef tíma til þess. Held að ég eigi séns á að taka hann næsta haust sem er auðvitað best. Sjáum til hvað gerist.
Allavega, tími til að ég sýni ykkur eitthvað af myndum úr skólanum.
Hérna er teiknistofan þar sem ég er að læra Analysis of Form og þarna er hesturinn minn (dótið sem ég sit á þegar ég teikna) með öllu dótinu mínu á.
Myndir sem ég teiknaði af mér og Chelsea svona til að punta upp á hurðina hjá okkur.
Ég hef fengið góð viðbrögð frá vinahópnum og eru flestir búnir að biðja mig um mynd af sér.
4 comments:
Þetta er margfætlan í jói og risaferskjan. :)
Ding ding ding :)
Kennarinn átti líka norn frá the Nightmare Before Christmas. Eftir að myndin var gerð mátti starfsfólkið bara ganga á lagerinn og taka það sem þau vildu. Afgangnum var hent
Gaman að sjá myndir úr skólanum, örugglega skemmtilegur og góður skóli, svoooodið dýr !
Oh geggjað! Hefði ekki haft neitt á móti því að eiga props úr Nightmare before christmas!
kv. Auður
Post a Comment